Gates harmar samskiptin við Epstein Hólmfríður Gísladóttir skrifar 5. ágúst 2021 08:39 Gates segir þá Epstein hafa snætt saman nokkur skipti. Bill Gates, stofnandi Microsoft og einn ríkasti maður heims, harmar að hafa átt samskipti við fjársýslumanninum Jeffrey Epstein. Sagðist hann einungis hafa gert það í von um að Epstein notaði tengsl sín til að afla fjármuna til mannúðarmála. „
Það voru stór mistök að verja tíma með honum, að ljá honum trúverðugleika með því að vera á staðnum,“ sagði Gates í viðtali við CNN í gær. Sagðist hann snætt nokkrum sinnum með Epstein en bundið enda á samskiptin þegar ljóst varð að þau myndu ekki skila neinu. Fjársýslumaðurinn var handtekinn fyrir að hafa nauðgað og misnotað fjölda stúlkna undir lögaldri. Hann framdi sjálfsvíg í fangaklefa í New York í ágúst árið 2019. Gengið var frá skilnaði Gates og eiginkonu hans Melindu á dögunum en Gates neitaði að svara fyrirspurn Wall Street Journal um það hvort tengsl hans við Epstein hefðu átt þátt í því að hjónabandið gekk ekki upp. Orðrómur hefur verið uppi þess efnis. „Þetta er tími íhugunar og nú þarf ég að horfa til framtíðar,“ sagði Gates við CNN. „Fjölskyldan mun gróa eins vel og hún getur.“ Samkvæmt skilmálum skilnaðarins munu næstu tvö ár leiða í ljós hvort Bill og Melinda geta unnið saman að góðgerðastofnun sinni. Ef ekki, mun Bill greiða fyrrverandi eiginkonu sinni fyrir að ganga frá samstarfinu. Gates segist þó vonast til þess að Melinda komi áfram að stofnuninni. „Það væri örugglega best fyrir stofnunina. Melinda býr yfir ótrúlegum styrkleikum sem gera stofnunina betri.“
Microsoft Jeffrey Epstein Bandaríkin Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira