Erlent

Tak­markanir ekki hertar: Eng­lendingar fá að djamma um ára­mót

Árni Sæberg skrifar
Boris Johnson hlakkar eflaust til áramótanna.
Boris Johnson hlakkar eflaust til áramótanna. Tolga Akmen/Getty

Boris Johnson, forsætisráðherra Englands hefur tilkynnt að sóttvarnatakmarkanir verði ekki hertar fyrir áramót. Fjöldasamkomur verða leyfðar og skemmtanaþyrstir munu geta dansað fram á rauða nýársnótt.

Ákvörðunin um að herða ekki takmarkanir gæti komið mörgum spánkst fyrir sjónir en á jóladag var slegið nýtt met í fjölda smitaðra af kórónuveirunni á Englandi. 113.638 fengu þá jákvæða greiningu í jólagjöf.

Því hafa vísindamenn gagnrýnt ákvörðunina og segja hana vera „mestu frávik frá vísindalegri ráðgjöf í löggjöf frá upphafi faraldurs kórónuveirunnar.“

Í frétt The Guardian um málið segir að tilkynningin hafi komið í kjölfar þess að ráðgjafar Johnsons hafi tjáð honum að aukið álag á heilbrigðiskerfið skýrðist ekki af fjölda innlagna. Ástæða þess væri mannekla vegna dreifingar veirunnar meðal starfsfólks. Spálíkan eitt gerir ráð fyrir því að allt að 40 prósent heilbrigðisstarfsfólks í Lundúnum verði frá vegna veikinda. 

Þá er búist við því að ríkisstjórn Englands muni frekar leggja áherslu á bólusetningu þjóðarinnar en takmarkanir, þar á meðal veitingu örvunarskammts.

Athygli vekur að ensk stjórnvöld eru þau einu innan Bretlands sem ekki ætla að herða takmarkanir fyrir áramót. Í Skotlandi, Wales og Norður-Írlandi hafa verið settar á fjöldatakmarkanir.

Heilbrigðisráðherrann Sajid Javid hvetur fólk til að halda uppi persónulegum sóttvörnum. „Við munum ekki aðhafast frekar. Auðvitað ætti fólk að fara varlega í aðdraganda áramóta og taka hraðpróf ef þarf, fagna úti ef hægt og hafa góða loftræstingu innandyra ef það er mögulegt,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×