Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hannesi. Þar kemur fram að Hannes hafi verið virkur í umræðunni um fasteignamarkaðinn á undanförnum árum. Hannes segist sannfærður um að geta lagt sitt af mörkum til að gera góðan bæ enn betri.
„Mig langar að leggja mitt af mörkum að gera góðan bæ enn betri og bið um ykkar stuðning 12. mars. Þið ykkar sem þekkið mig vitið að ég er duglegur, heiðarlegur og þegar ég tek að mér verkefni þá er ekkert hálfkák. Það er hollt fyrir sveitarfélagið og íbúa þess að fá nýtt fólk í bæjarstjórn og ég er sannfærður um að ég geti lagt mitt af mörkum til að gera gott betra. Ég er Kópavogsbúi og vill hvergi annarstaðar vera,“ segir Hannes í tilkynningunni.
Hér að neðan má svo sjá lista yfir þau málefni sem Hannes segir sér hugleikin:
- Íþróttir barna og unglinga, öll börn í Kópavogi eiga að geta æft íþróttir óháð fjárhag foreldra, íþróttir er ein besta forvörnin.
- Finna lausn a þvi að foreldrar þurfi ekki að vera í 5% starfi í að skutla og sækja í íþróttir.
- Uppbygging húsnæðis næstu árin, þar er mikið atriði að vanda til verka og byggja íbúðir sem henta öllum aldurshópum.
- Finna leiðir til að byggja ódýrari íbúðir fyrir unga Kópavogsbúa sem búa í foreldrahúsum eða í leiguhúsnæði.
- Fjárhagsstaða Kópavogs er sterk og velja þarf vel í hvaða verkefni fjármunir eru settir.
- Auka þjónustu við Kópavosbúa sem byggðu þenna frábæra bæ upp.
- Auka við forvarnir og fræðslu barna og unglinga.
- Styrkja ungliðastarf flokksins, finna framtíðar forystufólk.
- Leikskólamál.