Baldur Þór: Við höfum trú á þessu 4. mars 2022 22:55 Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls, var ánægður með sigur sinna manna í kvöld. vísir/bára Tindastóll vann mikilvægan heimasigur á Stjörnunni. Lokatölur 94-88 og Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari liðsins, segir að hann og leikmenn liðsins hafi trú á verkefninu sem framundan er. „
Þessi var frábær og gaman að spila vel í 40 mínútur á sóknarvelli og svo lokuðum við fyrir þá hérna í fjórða með góðum varnarleik,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Tindastóls eftir leik. „Við vitum alveg að við getum þetta, við getum unnið öll þessi lið í deildinni. Sérstaklega á heimavelli þegar að fólkið er á bak við okkur og það er stuðningur eins og er búinn að vera hérna í seinustu tveimur leikjum,“ sagði Baldur. „Við höfum trú á þessu og við köllum eftir fólkinu sem hefur trú á þessu, sem er greinilega að mæta hérna og hafa gaman með okkur í þessu,“ sagði Baldur.Stjarnan náði smá forskoti í þriðja leikhluta og komust nokkrum stigum yfir, Baldur var ánægður með viðbrögð sinna manna. „Þeir koma vel út í þriðja leikhluta og voru að gera vel,“ sagði Baldur. Taiwo Badmus, leikmaður Tindastóls átti góða innkomu af bekknum og sagði Baldur að það væri mikilvægt fyrir sitt lið. „Hann var mjög góður í seinni hálfleik, Viðar kom inn með frábæra varnar frammistöðu, heilt yfir var þetta vel spilaður leikur,“ sagði Baldur. Tindastóll á leik við KR næsta mánudag og spurður út í uppleggið gegn þeim kvaðst Baldur þurfa að skoða leik þeirra við ÍR og sagði að „þeir eru með Carl Lindom, Adama Darboe, Brynjar Þór Björnsson, Björn Kristjánsson og þetta er hörku lið, þetta verður barátta.“ „Við eigum fullt af heimaleikjum eftir, við ætlum okkur að vinna þá og við þurfum að ná í sigra og hver leikur er risa stór eins og staðan er núna af því að þetta er algjör pakki frá 10. sæti upp í 3. sæti.“
Subway-deild karla Tindastóll Tengdar fréttir Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 94-88 | Stólarnir tóku mikilvæg stig á heimavelli Tindastóll vann mikilvægan sex stiga sigur gegn Stjörnunni er liðin mættust í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 94-88. 4. mars 2022 21:59 Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Mál Alberts truflar landsliðið ekki Fótbolti Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport Fleiri fréttir Í beinni: KR - Grindavík | Bæði lið geta jafnað toppliðið að stigum Sjaldgæf 30-20-10 þrenna í Síkinu í gær Sömu félög að spila í tveimur íþróttum í sama húsinu á sama tíma Kristófer Acox kallar sig glæpamann Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð Sjá meira
Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 94-88 | Stólarnir tóku mikilvæg stig á heimavelli Tindastóll vann mikilvægan sex stiga sigur gegn Stjörnunni er liðin mættust í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 94-88. 4. mars 2022 21:59