Real Madrid vann í kvöld 2-0 sigur á Getafe í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, LaLiga.
Madrídingar eru komnir ansi nálægt Spánarmeistara titilinum með sigrinum en liðið er nú með 12 stiga forskot á toppnum þegar sjö leikir eru eftir. Níu stig í viðbót og titilinn er í hús.
Casemiro gerði fyrsta mark Real Madrid í kvöld á 38. mínútu eftir frábæran undirbúning Vinícius Júnior.
Lucas Vazquez tvöfaldaði forystu Madrid á 68. Mmínútu og reyndist það síðasta mark leiksins. Lokatölur 2-0 fyrir Real Madrid.
Á sama tíma tapaði Atletico Madrid afar óvænt gegn Mallorca en Vedat Muriqi gerði eina mark Mallorca í 1-0 sigri. Mallorca lyftir sér upp úr fallsæti með sigrinum og upp í 17. sætið. Atletico lendir hins vegar 15 stigum á eftir toppliði Real Madrid með tapinu. Það virðist því fátt koma í veg fyrir að deildarmeistaratitillinn fari til Real Madrid í ár.