Domenicali segir að forráðamenn Formúlu 1 séu engu að síður að leita leiða til þess að bæta sitt kerfi til að auka líkurnar á að konur keppi í sterkustu kappaksturskeppni heims.
„Það er afar mikilvægt að við gerum líkurnar sem mestar á því að konur komi í F1. Við leggjum okkur algjörlega fram við það,“ sagði Domenicali en bætti við:
„Ef við horfum á þetta raunsætt, ekki nema að eitthvað gerist á borð við að loftsteinn lendi hér, þá sé ég ekki að stelpa komi inn í F1 á næstu fimm árum. Það er mjög ólíklegt.“
Tvær konur hafa keppt í Formúlu 1, báðar ítalskar. Sú fyrri var Maria Teresa de Filippis sem keppti fimm sinnum á sjötta áratugnum, og Lella Lombardi keppti svo í tólf keppnum á áttunda áratugnum og er eina konan sem unnið hefur til stiga í Formúlu 1.
Forráðamenn F1 hafa reynt að gera W-mótaröðina, þar sem aðeins konur keppa, meira sýnilega með því að hafa mótin á sömu brautum og um sömu helgar og Formúla 1.
Boðar aðgerðir til að greiða veg kvenna inn í Formúlu 1
„Við erum mjög ánægð með hvernig til hefur tekist með samstarfið við Formúlu W. En við teljum að til þess að stelpur geti keppt á sama stigi og strákarnir þá þurfi þær að vera á sama aldri þegar þær byrja að keppa á brautinni, í Formúlu 3 og Formúlu 2.
Við erum að vinna í þessum málum til að sjá hvernig við getum bætt kerfið okkar. Og þið munuð sjá raunverulegar aðgerðir. Við viljum vinna þetta þannig að þær geti farið að keppa við strákana, á sama aldri, á réttum bíl,“ sagði Domenicali en vildi þó ekki fara út í það hvaða aðgerðir væru fyrirhugaðar.
Sú besta stefnir á Formúlu 1
Jamie Chadwick hefur tvisvar sinnum unnið W-mótaröðina en hún hefur sagt að hún sé ekki viss um að konur ráði við líkamlegu kröfurnar sem fylgi því að komast inn í Formúlu 1. Eitt vandamálið er það að í Formúlu 2 og Formúlu 3 er ekki notast við vökvastýri.
„Ég hef sett mér það markmið að keppa í Formúlu 1 en ég er ekki viss um að það sé hægt. Til að komast inn í Formúlu 1 þarf að fara í gegnum mótaraðirnar þar fyrir neðan, Formúlu 2 og Formúlu 3, og líkamlegu kröfurnar þar eru svakalegar,“ sagði Chadwick fyrr í sumar.
„Formúla 1 krefst rosalega mikilla líkamlegra átaka, og við vitum ekki alveg hvað konur höndla í þessari íþrótt. Ef maður er 15 eða 16 ára, og fer út í að keppa í kappakstri, án vökvastýris og á stórum og þungum bílum, þá lenda margar konur í vandræðum, alveg sama þó að þær hafi notið velgengni í go-kart,“ sagði Chadwick.