Ísland mætir sigurliðinu úr leik Portúgals og Belgíu, á útivelli, í stökum leik um það að komast á HM.
„Tveir góðir andstæðingar og þetta er útileikur, sem er kannski ekki draumurinn, en möguleiki og við tökum þessum andstæðingum bara og undirbúum okkur vel,“ voru fyrstu viðbrögð Þorsteins við drættinum.
Það kemur ekki í ljós fyrr en fimmtudagskvöldið 6. október hvorum andstæðingnum Ísland mætir.
Finna stað sem auðvelt verður að ferðast frá
„Væntanlega komum við saman einhvers staðar á meginlandi Evrópu, viku fyrir leik eða svo, og byrjum bara að undirbúa okkur með tilliti til einfaldra flugsamgangna í leikinn. Við þurfum að skipuleggja okkur út frá því líka.
Það er örugglega skrýtið að undirbúa sig þegar maður veit það ekki fyrr en á fimmtudagskvöldi hver andstæðingurinn verður. Þó maður sé búinn að undirbúa helling fram að því þá verður lokaniðurstaðan ekkert klár fyrr en á fimmtudagskvöldi; í hvaða landi við spilum og við hverjar. Það þarf að huga að ýmsu áður en maður mætir á leikstað,“ segir Þorsteinn sem segir lítið hægt að spá fyrir um hvort að Portúgal eða Belgía vinni og mæti Íslandi:
Óvissa varðandi Karólínu Leu
„Ég tel að þetta verði bara hörkuleikur á milli þessara liða og maður veit raunverulega ekkert hvort liðið mun vinna. Við þurfum bara að búa okkur vel undir báða möguleikana“ segir Þorsteinn.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir missti af leiknum mikilvæga við Holland á þriðjudagskvöld, vegna meiðsla aftan í læri, og er hún helsta spurningamerkið í dag varðandi leikinn 11. október.
„Það á eftir að koma í ljós,“ sagði Þorsteinn aðspurður hvort hann yrði með sitt sterkasta lið. „Það eru leikir framundan hjá stelpunum og það getur allt gerst. Mesta óvissan er kannski með Karólínu Leu, og svo spurningamerki með Cecilíu [Rán Rúnarsdóttur] hvort að hún verði klár. Að öðru leyti held ég að allar verði klárar eins og staðan er í dag,“ segir Þorsteinn en nánar er rætt við hann í viðtalinu hér að neðan.