„Þetta gerðist í raun og veru síðasta haust. Þá fékk ég símtal frá umboðskonunni minni í Hollywood sem hringir í mig seint um kvöld og segir: „Herdís, veistu hvaða leikstjóri M. Night Shyamalan er?“ Og ég var alveg já, ég veit hver hann er.“
Þá sagði umboðskonan henni að Shyamalan vildi tala við hana í símann sem fyrst og Herdís segist ekki hafa áttað sig á því hvernig hann vissi hver hún var.
Skrifaði myndina út frá tónlist Herdísar
Herdís hefur unnið í ýmsum stórum tónlistarverkefnum að undanförnu. Hún samdi meðal annars tónlist fyrir sjónvarpsseríurnar Verbúðin, Y: The Last Man og The Essex Serpent með Tom Hiddlestone og Claire Danes í aðalhlutverkum. Þá hefur hún einnig gefið sjálf út lög undir listamannsnafninu Kónguló.
Áhugi Shyamalan kom Herdísi í opna skjöldu en hann hafði heyrt tónlistina hennar við þættina Y: The Last Man.
„Hann hafði verið að skrifa story boardið að Knock at the Cabin við tónlistina mína og var mjög innblásinn af henni.“
Frábær og kröfuharður
Herdís segir ferlið hafa gengið ótrúlega vel og þetta sé lang stærsta verkefnið sem hún hefur tekið hingað til. Samstarfið við Shyamalan var mjög gott og á sama tíma krefjandi.
„Hann er frábær og við kynntumst í sumar og urðum vinir. Hann er æðisleg manneskja en hann er mjög kröfuharður.“
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér að neðan.