Twitter issued this statement about today's news: We received the letter from the Musk parties which they have filed with the SEC. The intention of the Company is to close the transaction at $54.20 per share.
— Twitter Investor Relations (@TwitterIR) October 4, 2022
Elon Musk bauðst í nótt til að standa við fyrirhuguð kaup á Twitter. Hann hafði áður neitað að standa við kaupin og fyrirtækið höfðaði mál í kjölfarið. Tvær vikur eru í að fyrirhuguð réttarhöld vegna meintra samningsbrota áttu að fara fram.
Stjórnendur samfélagsmiðilsins settu spurningarmerki við bréf Musk sem þeim barst í nótt og veltu því upp hvort eitthvað annað byggi að baki - til að mynda einhvers konar „lögfræðifimleikar.“ Nú hafa þeir þó ákveðið að taka tilboðinu.
Hlutabréf hækkað um rúm 9% í dag
Musk tilkynnti í apríl síðastliðnum að hann vildi kaupa Twitter fyrir 41 milljarð bandaríkjadala. Í kauptilboði bauð hann 54,20 bandaríkjadali á hlut, sem var um 38 prósentum hærra en hlutabréf í fyrirtækinu voru metin á við lokun markaða 1. apríl. Hlutabréf hafa eftir tilkynningu Musk í dag hækkað um rúm 9% og standa nú í rúmum 51 bandaríkjadölum á hlut.
Musk sagði síðan í júlí á þessu ári að hann vildi rifta samningnum. Hann sagði fyrirtækið ekki hafa staðið við kaupsamninginn, með því að hafa ekki útvegað honum nánari upplýsingar um raunverulegan fjölda falskra reikninga og svokallaðra „botta“ á miðlinum.
Eins og fyrr segir höfðuðu stjórnendur Twitter mál í kjölfarið og kröfðust þess að Elon Musk stæði við kaupin. Í kærunni sagði að Musk hafi sett upp leiksýningu þegar hann sóttist eftir því að eignast fyrirtækið en síðan talið sig undanþeginn lögum. Hann hafi talað illa um fyrirtækið, raskað starfsemi þess, dregið úr virði Twitter og gengið á braut.