Alicante-farar fá engar bætur eftir að Play flaug með leiguflugvél í stað Airbus Atli Ísleifsson skrifar 21. október 2022 10:49 Hópurinn fékk endurgreiddan kostnað frá Play vegna sætavals í Airbus-vélinni, en fær hins vegar engar skaðabætur fyrir að hafa flogið til Alicante í leiguflugvél. Vísir/Vilhelm Fjórir viðskiptavinir Play fá engar skaðabætur úr hendi flugfélagsins eftir að það neyddist til að notast við leiguflugvél í áætlunarflugi til Alicante á Spáni í júní síðastliðnum. Hópurinn kvartaði þar sem hann taldi að um niðurfærslu í flugi væri að ræða og að þau hafi borgað fyrir að fljúga með Airbus-vél flugfélagsins.
Þetta kemur fram í ákvörðun Samgöngustofu í málinu. Þar segir að kvörtun hafi borist stofnuninni í júlí síðasta sumar frá fjórum viðskiptavinum Play sem flugu til Alicante þann 14. júlí. Í ákvörðuninni má sjá að í svörum Play komi fram að flugfélagið bjóði einungis upp á eitt almennt farrými, en að farþegar geti valið sæti á ákveðnum stað í vélinni gegn greiðslu. Flugfélagið hafi daginn eftir flugið, eftir kvörtun frá viðskiptavinunum, endurgreitt kostnað vegna sætavals auk þess að bjóða þeim betri sæti í næstu flugferð þeirra með flugfélaginu. Fram kemur að töf hafi orðið á afhendingu á síðustu flugvél Play umræddan dag sem gerði það að verkum að nauðsynlegt hafi verið að fá leiguflugvél inn í skamman tíma. Kvartendur hafi svo flogið út með leiguflugvélinni. Töldu sig hafa borgað fyrir að fljúga í Airbus Í svörum viðskiptavinanna segir þeir telji sig hafa borgað fullt gjald fyrir flugferð með Airbus-vél frá Play en hins vegar fengið flug með Fly2sky sem hafi ekki verið valið. „Ég hefði þá flogið með Icelandair því valið stóð þar á milli en ég vildi prófa að fljúga með Play. Við vorum komin um borð á útleið þegar við komumst að því að þetta var leiguvél og gátum ekki aðhafst neitt í því. Ég spurðist svo fyrir varðandi heimferðina því ég vildi ekki fara aftur með þessu flugfélagi og fékk þá póst daginn fyrir heimferð að það yrði nýjasta vélin þeirra. Sama dag eða um 6 klt fyrir brottför fæ ég póst um að það sé aftur Fly2sky og ekki nýja vélin. Ég gat ekki aðhafst neitt í því á þeim tímapunkti heldur,“ segir í svarinu. Kröfu um skaðabætur hafnað Viðskiptavinirnir segjast vilja halda því til haga að þeir skilji vel að fyrirtæki lendi í vandræðum og verði að grípa til ráðstafana. En þau verði þá að koma til móts við viðskiptavini og endurgreiða að hluta til verð vörunnar sem ekki stóðst væntingar. „Í grunninn er þetta bara að ég keypti eitt en fékk annað sem ég tel ekki sambærilegt,“ segir í svari fjölskyldunnar. Með vísun í reglugerð um réttindi flugfarþega, loftferðalaga og samningsskilmála Play taldi Samgöngustofa hins vegar að ekki yrði séð að umrædd breyting á loftfari geti talist niðurfærsla á farrými. Kröfu fjölskyldunnar um skaðabætur úr hendi Play var því hafnað.
Play Fréttir af flugi Neytendur Samgöngur Mest lesið Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi ESB skammar Shein: Falskir afslættir og villandi upplýsingar Sorpa í Hafnarfirði opnar framvegis klukkan níu um helgar Landsbankinn og Arion lækka vexti „Sporttöppum“ aftur komið fyrir Sagði eldri menn vísvitandi borna röngum sökum en situr uppi með Svarta-Pétur Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Verð á innlendri dagvöru hækkar hraðar en verð á erlendri Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Hefði fengið rúmum tíu þúsundkalli meira í vasann í bankaútibúi „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Sjá meira