Skoðun

Til hamingju með 10 árin kæru Píratar - í öllum flokkum og utan

Jón Þór Ólafsson skrifar

Frá ‘Frelsis sáttmálanum mikla’ árið 1215 á Englandi hafa fyrst aðalsmenn, svo borgarastéttin og loks verkafólk nýtt tækifæri sem helst stríð, byltingar og tækni hafa skapað til að vernda og efla sín borgararéttindi, og sinn rétt á aðkomu að ákvörðunum sem það varðar. - Þetta er nákvæmlega Grunnstefna Pírata.

Píratar eru fyrst stofnaðir sem eins konar stjórnmálaarmur internetsins til að vernda nýju netsamfélögin sem upplýsingatæknibyltingin gerði möguleg. Píratar víkka svo út stefnu sína til að taka upp á 21 öldinni kyndil baráttunnar fyrir borgararéttindum og beinna lýðræði eins og margt hugrakkasta fólk heimssögunnar hefur gert í rúm 800 ár.

Grunnstefna Pírata er stutt plagg. - En ekkert eitt atriði hefur betur tryggt þá samstöðu sem þurfti til að koma okkur á Alþingi 2013, koma okkur svo á öðru ári á þingi í yfir 30% fylgi í heilt ár - já og hæst í 41% fylgi - og halda svo ungum stjórnmálaflokki saman þegar við fórum óhjákvæmilega aftur niður þar sem við höfum siglt í þetta 10-15% fylgi síðan.

Grunnstefnan setur í forgang það sem verður að vera í forgangi því að er grundvöllur frelsis, öryggis og réttarríkis okkar allra til lengri tíma - borgararéttindi og lýðræði. Á þeim grunni býður Grunnstefnan upp á beint lýðræði við mótun annarra stefnumála sem hafa endurspeglað vilja almennings um öflugt velferðarkerfi, sem er gildi í sjálfu sér en styður líka við öfluga vernd réttinda og lýðræðis.

Hve einstakt er það svo hjá stjórnmálaflokki að hafa Grunnstefnu sem segir að allir verði að taka vel upplýstar ákvarðanir með gagnrýninni hugsun byggðum á gögnum. Grunnstefna Pírata - er í sögu heimsins - einstakt skjal fyrir stjórnmálaflokk.

Píratar eru í dag Frjálslyndur Velferðarflokkur sem vinnur að auknu gagnsæi og valddreifingu - allt sem Nýja Stjórnarskráin mun svo gera auðvelt að gera að veruleika.

Ef þú vilt:

√ Frelsi einstaklingsins - frekar en frelsi fjármagns eða forræðishyggju.

√ Í samfélagi sem aðstoðar allt fólk - sem getur það ekki sjálft.

√ og fá í bónus flokk sem setur gagnsæi og valddreifingu í meiri forgang en allir aðrir flokkar.

Þá ertu Pírati eins og ég. - Það er samfélag sem ég vill búa í.

Kærar þakkir fyrir samstarfið, það er allt annað en sjálfgefið að nýr flokkur á Íslandi finni svona góða fótfestu - og til hamnigju við öll með 10 árin okkar kæru Píratar.

Höfundur er fyrrverandi þingmaður Pírata.




Skoðun

Sjá meira


×