Þjálfarinn hvorki séð né heyrt frá Ramsey eftir HM Valur Páll Eiríksson skrifar 28. desember 2022 09:00 Ramsey virðist hafa átt erfitt með að jafna sig eftir vonbrigðin á HM. Marc Atkins/Getty Images Lucien Favre, þjálfari Nice í Frakklandi, hefur ekkert heyrt frá velska miðjumanninum Aaron Ramsey eftir að velska landsliðið féll úr keppni á heimsmeistaramótinu í Katar fyrir tæpum mánuði síðan.
Ramsey samdi við Nice í sumar eftir að samningi hans við Juventus á Ítalíu var sagt upp. Hann var hluti af velska landsliðinu sem var á HM í fyrsta sinn frá árinu 1958 en olli vonbrigðum í riðlakeppninni og féll úr leik. Flestallir leikmenn sem kepptu á mótinu hafa snúið aftur til félagsliða sinna. Ivan Perisic spilaði til að mynda með Tottenham á dögunum, þrátt fyrir að Króatar hafi farið töluvert lengra á mótinu en Wales. Sama má segja af Kylian Mbappé sem verður í leikmannahópi PSG í leik liðsins í dag, þrátt fyrir að hafa spilað alla leiki Frakka á HM er þeir fóru í úrslit. Ramsey afar vonsvikinn Favre sat fyrir svörum á blaðamannafundi í gær í aðdraganda leiks liðsins við Lens í frönsku deildinni á morgun. Hann kveðst ekki hafa heyrt frá Ramsey. „Nei, hann er ekki kominn aftur. Ég held að honum hafi reynst illa að melta heimsmeistaramótið. Við sjáum til,“ „Nei [ég hef ekki talað við hann]. Ég gæti gert það, en svona er þetta. Líkt og ég sagði, hann var afar vonsvikinn með HM. Hann mun taka sinn tíma til að ná sér,“ Ramsey hefur verið inn og út úr liði Nice frá því að hann samdi við félagið. Hann hefur byrjað fimm deildarleiki af fimmtán á leiktíðinni, en þar á meðal síðustu tvo fyrir HM. Honum gekk illa að finna sig í Katar og olli töluverðum vonbrigðum sem lykilmaður í liði Wales.
Franski boltinn Mest lesið Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Körfubolti Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Barði sig til blóðs eftir tap á HM Sport „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Enski boltinn Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron Körfubolti Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Handbolti „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ Enski boltinn Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Enski boltinn Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Enski boltinn „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vildi ekki skýra ummælin um verstu 48 klukkutímana frekar Rodgers á leið til Sádi-Arabíu Maresca hafi tekið blaðsíðu úr bók Salah og gert sér óleik Guardiola gagnrýndi Foden þrátt fyrir markið „Finnst þér ekki eins og hann sé þjakaður af pressu yfir því hvað hann sé lélegur?“ Fyrirliði Newcastle eftir tapið fyrir Sunderland: „Þetta er svo vandræðalegt“ Sjáðu klaufalegt sjálfsmark Woltemade í grannaslagnum og öll hin úr enska Amorim verður ánægður ef Mainoo ræðir við hann um lán „Sé ekkert annað en að dýrasti leikmaður deildarinnar verði áfram á bekknum“ „Í dag er dagurinn sem þú fæddist, í dag er dagurinn sem þú munt deyja“ Keyptu nýjan leikvang fyrir Glódísi og Bayern-konurnar Upphitun japanska fótboltamannsins er algjört augnakonfekt Brasilísk samvinna færði Real lífsnauðsynlegan sigur Henderson heiðraði minningu Jota eftir fyrsta markið sitt í fjögur ár Brjálaðist og sendi dómarann á sjúkrahús Emelía valin efnilegust hjá danska toppliðinu: „Einstök gleðisprengja“ Mikael Egill og félögum tókst ekki að stoppa toppliðið Calvert-Lewin jafnaði fyrir Leeds í lokin Hákon fann skotskóna í fyrsta sinn síðan í október „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Glódís fékk hvíld og leiðir liðið bráðum út á nýjan heimavöll Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Eigendur Juventus vildu ekki selja og nú þurfa leikmenn að sanna sig Þjálfari Orra Steins látinn fara Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö David Silva: Ég var sá fyrsti sem Beckham vildi fá til Inter Miami Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Sjá meira