Um er að ræða þá Adam Schiff, sem stýrði nefndinni á síðasta kjörtímabili og er einn af leiðtogum Demókrataflokksins, og Eric Swalwell, sem sat í nefndinni á síðasta kjörtímabili. Hakeem Jeffries, leiðtogi Demókrataflokksins í fulltrúadeildinni, sendi McCarthy bréf um síðustu helgi og bað um að Schiff og Swalwell yrðu áfram í nefndinni og sagði enga ástæðu til að hafna þeim.
McCarthy svaraði Jeffries í gær og sagðist ekki ætla að skipa þingmennina í nefndina. Forseti þingdeildarinnar skipar einn í leyniþjónustunefndina, öfugt við flestar aðrar nefndir.
I have rejected the appointments of Adam Schiff and Eric Swalwell for the House Intelligence Committee.
— Kevin McCarthy (@SpeakerMcCarthy) January 25, 2023
I am committed to returning the @HouseIntel Committee to one of genuine honesty and credibility that regains the trust of the American people. pic.twitter.com/ePxlbanxta
Á síðasta kjörtímabili ráku Demókratar þingmennina Marjorie Taylor Greene og Paul Gozar úr þingnefndum vegna ummæla þeirra og birtinga á samfélagsmiðlum þar sem þau voru sögð hvetja til ofbeldis gegn þingmönnum Demókrataflokksins.
Sjá einnig: Ætla að víta þingmann sem birti myndband af sér að drepa þingkonu
McCarthy segist samkvæmt AP fréttaveitunni ekki vera að hefna sín vegna brottrekstur Greene og Gosar úr þingnefndum, þrátt fyrir að hann hafi á síðasta kjörtímabili ítrekað hótað því að hefna sín þegar Repúblikanar tækju völdin á þinginu. Hann segir þetta mál varða þjóðaröryggi Bandaríkjanna og að Schiff og Swalwell gætu fengið sæti í öðrum nefndum.
McCarthy hefur um nokkuð skeið verið mjög gagnrýninn á Schiff vegna aðkomu hans að ferlinu þegar Donald Trump, fyrrverandi forseti, var fyrst ákærður af þinginu fyrir embættisbrot. Hann hefur ítrekað haldið því fram að Schiff hafi sagt bandarísku þjóðinni ósatt um Trump.
Kevin McCarthy just kicked me and @RepSwalwell off the Intelligence Committee.
— Adam Schiff (@RepAdamSchiff) January 25, 2023
This is petty, political payback for investigating Donald Trump.
If he thinks this will stop me, he will soon find out just how wrong he is.
I will always defend our democracy.
Þá hefur McCarthy ítrekað sagt ósatt um Swalwell og málefni kínverskrar konu sem grunuð er um njósnir í Bandaríkjunum. Kona að nafni Christine Fang vann sem sjálfboðaliði við framboð Swalwell árið 2012 og svo aftur árið 2014.
Sjá einnig: Meintur njósnari sængaði hjá minnst tveimur borgarstjórum
Árið 2015 vöruðu starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) Swalwell við því að hún væri grunuð um njósnir og í kjölfarið sleit hann öll tengsl við hana.
Repúblikanarnir John Boehner, fyrrverandi þingforseti, og Devin Nunes, og fyrrverandi formaður leyniþjónustunefndarinnar, vissu um málið og höfðu ekkert út á veru Swalwell í nefndinni að setja. Engar upplýsingar hafa litið dagsins ljós sem benda til þess að Swalwell hafi nokkuð rangt gert í máli hins meinta njósnara.
Swalwell segir að frá því McCarthy byrjaði að segja ósatt um sig og hinn meinta njósnara hafi morðhótunum gegn honum og fjölskyldu hans fjölgað gífurlega.
NEW @SpeakerMcCarthy-inspired death threat.
— Rep. Eric Swalwell (@RepSwalwell) January 21, 2023
You know, Kevin, every time you lie about me even after the @washingtonpost gives you 4 Pinocchios for your lies death threats like this flood in. pic.twitter.com/BXWlNqyjyF
McCarthy hefur einnig heitið því að reka þingkonuna Ilhan Omar úr utanríkismálanefnd þingsins. Þingmennirnir þrír hafa gefið frá sér yfirlýsingu um að aðgerðir þingforsetans gegn þeim grafi undan heilindum þingsins. Þeir segja þær til komnar vegna þess að McCarthy hafi neyðst til að gera samkomulag um pólitískar hefndir gegn þeim við öfgafyllstu meðlimir þingflokks Repúblikanaflokksins.
Þeir meðlimir gerðu McCarthy erfitt um vik með að verða þingforseti. Þau þvinguðu hann meðal annars til að samþykkja reglubreytingu um að nú þurfi bara einn þingmann til að kalla fram atkvæðagreiðslu um að víkja honum úr embætti.