„Það mun gerast mjög fljótlega. Við erum að tala um daga frekar en vikur. Við erum að vinna í þessu,“ sagði Toto, aðspurður að því hvort Hamilton myndi undirrita samninginn fyrir kanadíska kappaksturinn sem fram fer um næstu helgi.
„Ég er að fara að hitta hann seinna í dag. Kannski ræðum við þessi mál þá. Við eigum í svo góðu sambandi að ég kvíði fyrir því að þurfa að fara að tala um peningamálin við hann.“
Framtíð Hamiltons hjá Mercedes virtist í lausu lofti fyrir nokkrum vikum og veltu einhverjir því fyrir sér hvort hann myndi skilja við liðið og keyra um á rauðum Ferrari á næsta tímabili. Sjálfur hefur sjöfaldi heimsmeistarinn þó blásið á þær sögusagnir og nú stefnir allt í að þessi 38 ára gamli ökuþór haldi tryggð við Mercedes.
Hamilton á sex mánuði eftir af núgildandi samningi sínum við Mercedes, en búist er við því að nýi samningurinn verði til nokkurra ára. Því má búast við því að Hamilton muni keyra Mercedes-bíl í Formúlu 1 eitthvað inn í fimmtugsaldurinn.
Hamilton er sigursælasti ökuþór í Formúlu 1 frá upphafi og hefur unnið 103 af þeim 317 keppnum sem hann hefur tekið þátt í. Þá hefur hann orðið heimsmeistari ökumanna sjö sinnum, oftar en nokkur annar, ef frá er talinn Michael Schumacher sem einnig varð heimsmeistari sjö sinnum.