Fótbolti

Michael Olise hetja franska liðsins

Hjörvar Ólafsson skrifar
Michael Olise fagnar markinu sem hann skoraði með Amine Adli. 
Michael Olise fagnar markinu sem hann skoraði með Amine Adli.  Vísir/Getty

Michael Olise skoraði sigurmark Frakklands þegar liðið lagði Noreg að velli með einu marki gegn engu í riðlakeppni Evrópumótsins í fótbolta karla skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri. 

Í sama riðli bar Ítalía sigur úr býtum, 3-2, móti Sviss en þar voru það Lorenzo Pirola, Fabiano Parisi og Wilfried Gnonto sem skoruðu mörk Ítala. 

Kastriot Imeri og Zeki Amdouni sáu hins vegar um markaskorunina fyrir svissneska liðið. 

Frakkar hafa fullt hús stiga eftir tvær umferðir en Ítalía og Sviss hafa þrjú stig hvort lið og Noregur rekur lestina án stiga. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×