Rússar segja sig úr Barentsráðinu Samúel Karl Ólason skrifar 18. september 2023 16:57 Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, á fundi Barentsráðsins í Noregi 2021. EPA/Rune Stoltz Bertinussen Yfirvöld í Rússlandi hafa ákveðið að segja sig úr Barentsráðinu og saka nágranna sína um að hafa gert ráðið óstarfhæft. Rússar segja Finna ekki hafa viljað afhenda þeim forsæti ráðsins.
Barentsráðið var stofnað árið 1993 og samanstendur af Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Rússlandi. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur einnig átt sæti í Barentsráðinu. Ráðið var stofnað til að auka samvinnu ríkja sem liggja að Barentshafinu. Í yfirlýsingu á vef utanríkisráðuneytis Rússlands segir að ráðið hafi reynst vel í gegnum árin og í gegnum það hafi friður og stöðugleiki á svæðinu verið tryggður. Önnur ríki í því hafi gert ráðið óstarfhæft frá mars 2022. Í febrúar 2022 réðust Rússar inn í Úkraínu. Finnar hafa farið með forsæti Barentsráðsins og áttu Rússar að taka við því. Í yfirlýsingu Rússa segir að Finnar hafi ekki virst tilbúnir til þess og því hafi verið ákveðið að Rússar segðu sig úr ráðinu. Í yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins segir að yfirvöld Rússlands séu sannfærð um að „hið núverandi pólitíska ástand“ sem stýri aðgerðum nágranna Rússlands á norðurhveli sé ekki í samræmi við langtímahagsmuni svæðisins. Er ábyrgð á því að Barentsráðið sé ekki lengur starfhæft lögð að fótum „félaga“ Rússlands í ráðinu.
Rússland Danmörk Finnland Noregur Svíþjóð Evrópusambandið Norðurslóðir Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira