Bergrún og Jón Þór til Samkaupa Atli Ísleifsson skrifar 26. september 2023 14:07 Bergrún Ólafsdóttir og Jón Þór Hallgrímsson. Samkaup Bergrún Ólafsdóttir og Jón Þór Hallgrímsson hafa verið ráðin nýir verkefnastjórar hjá Samkaupum.
Í tilkynningu segir að Jón Þór hafi verið ráðinn verkefnastjóri fjármála og reikningshalds á fjármála- og rekstrarsviði Samkaupa en Bergrún verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála. „Jón Þór mun vinna náið með fjármálastjóra Samkaupa og gegna lykilhlutverki í nútímavæðingu og almennri uppbyggingu fjármálasviðs samhliða því að sjá um daglegan rekstur fjármála- og reikningshaldsdeildar. Jón Þór hefur yfirgripsmikla reynslu af vinnu á fjármálasviði og kemur með ítarlega þekkingu inn í fyrirtækið á reikningshaldi, fjármálagreiningu og endurskoðun. Jón Þór kemur til Samkaupa frá Kerecis þar sem hann hefur starfað sem sérfræðingur á fjármálasviði frá árinu 2022 en þar áður var hann hjá sérfræðingur á endurskoðunarsviði Deloitte 2017-2022. Jón Þór er með Macc. gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskólanum í Reykjavík og BSc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Bergrún Ólafsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum. Bergrún mun leiða samstarf Samkaupa við Pure North sem felur í sér heildstæða ráðgjöf í úrgangsstjórnun, samhliða eftirfylgni með umhverfismarkmiðum Samkaupa og verslana fyrirtækisins; Nettó, Kjörbúð og Krambúð. Bergrún kemur til Samkaupa frá Hjálpræðishernum á Íslandi þar sem hún hefur starfað frá byrjun árs 2021 sem verslunar- og verkefnastjóri. Í starfi sínu hjá Hjálpræðishernum leiddi Bergrún verkefni um mataraðstoð, gegn matarsóun, með Samkaupum sem á fyrstu fimm mánuðum verkefnisins leiddi til rúmlega 20 milljóna króna styrks og gefur nú allt að 300 einstaklingum daglega að borða. Bergrún er menntuð í fata- og textílhönnun og hlaut á árinu umhverfisviðurkenningu Reykjanesbæjar fyrir frumkvæði í sjálfbærnimálum og þátttöku í hringrásarhagkerfinu,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Verslun Mest lesið Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Neytendur Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Viðskipti innlent Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Viðskipti innlent Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Viðskipti erlent Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Viðskipti innlent Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sjá meira