Ólafur Stefánsson orðaður við þekkt Íslendingalið í Þýskalandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. nóvember 2023 09:10 Ólafur Stefánsson er að bíða eftir nýju starfi og það gæti verið að detta inn. Getty/Ronny Hartmann/p Ólafur Stefánsson gæti verið að fá nýtt starf í þýska handboltanum og það hjá liði sem þekkir það vel að hafa Íslendinga í sínum röðum.
Ólafur er sagður koma sterklega til greina sem næsti þjálfari þýska b-deildarliðsins EHV Aue en handbolti.is hefur heimildir fyrir þessu. EHV Aue er að leita að nýjum þjálfara eftir að Stephen Just var rekinn í síðustu viku eftir mjög slaka byrjun liðsins á tímabilinu. Búist er við því að nýr þjálfari verði tilkynntur í dag eða á morgun. Það verður spennandi að sjá hvort það verði Ólafur. Fái hann starfið bíður hans mjög krefjandi verkefni að halda liðinu í deildinni. Ólafur var síðast aðstoðarþjálfari hjá HC Erlangen en hætti störfum stuttu fyrir tímabilið. Íslendingar hafa spilað með EHV Aue í gegnum tíðina en Sveinbjörn Pétursson hefur verið markvörður liðsins frá árinu 2020. Rúnar Sigtryggsson þjálfaði liðið líka í fjögur ár frá 2012 til 2016. EHV Aue vann sigur á TuS N-Lübbecke um helgina og kom sér þar með af botni b-deildarinnar en þetta var aðeins annar sigur liðsins á tímabilinu. EHV kom upp úr C-deildinni í vor eftir eins árs veru.
Þýski handboltinn Mest lesið Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Af hverju fékk Veigar Páll eins árs dóm og hvort fellur KA eða Þór? Sport Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport Fleiri fréttir FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Sjá meira