Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Árni Sæberg skrifar 4. apríl 2024 12:17 Tæknin sem Amazon kallar „Just walk out“ eða „Gakktu bara út“ gerði viðskiptavinum á borð við herramanninn hér til vinstri kleift að ganga út án þess að stöðva við greiðslukassa. Leonardo Munoz/Getty Verslunarrisinn Amazon hefur ákveðið að hætta notkun tæknilausnar í verslunum sínum, sem gerði viðskiptavinum kleift að taka hluti úr hillunum og einfaldlega labba út. Lausnin er sögð byggð á vinnu um eitt þúsund indverskra láglaunaverkamanna í stað gervigreindar.
Amazon kynnti verslunarkeðjuna Amazon Go til sögunnar árið 2016. Verslunarkeðjan var sérstök að því leytinu til að hún var algjörlega laus við allar raðir eða greiðslukassa. Í verslunum keðjunnar eru skannar sem skynja hvaða vörur viðskiptavinir taka með sér heim. Við komu í búðina skanna viðskiptavinir smáforrit í farsíma sínum. Því næst er hægt að ganga um búðina og velja vörur á hefðbundinn hátt. Þegar búðin er yfirgefin er viðkomandi svo rukkaður fyrir vörurnar sem hafðar eru meðferðis í gegnum Amazon reikning. Þessi tækni var sögð keyrð af gervigreind. Nú hefur tæknirisinn ákveðið að breyta um stefnu og kynna til leiks einhvers konar snjallkörfur, sem greina hvaða vörur viðskiptavinir setja í þær. Ástæðan er sú að gervigreindin virkaði ekki sem skyldi. Frá þessu greinir tæknimiðillinn The Information, sem hefur eftir heimildarmanni sínum að um það bil eitt þúsund Indverjar hafi unnið við það að fara yfir hvaða vörur viðskiptavinir höfðu með sér úr verslununum. Þeir hafi þurft að yfirfara sjötíu prósent allra viðskipta í verslununum en stjórnendur Amazon hafi stefnt að því að aðeins þyrfti að yfirfara fimm prósent viðskipta. Amazon þverneitar Í frétt Business Insider um málið segir að talsmaður Amazon hafi þvertekið fyrir fullyrðingar The Information í skriflegu svari til miðilsins. Talsmaðurinn hafi sagt starfsmennina í Indlandi helst hafa unnið að því að þjálfa gervigreindartæknina sem lausnin byggir á. Þeir hafi þó í einhverjum tilvikum farið yfir viðskipti sem tæknin geti ekki sannreynt innkaup viðskiptavina með fullri vissu.
Gervigreind Tækni Verslun Amazon Mest lesið Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Atvinnulíf Búið að greiða laun en barnabætur berast seinna í dag Viðskipti innlent Isavia gefur strandaglópum engin grið Viðskipti innlent Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Viðskipti innlent Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Viðskipti innlent Ásgeir og Darri til Landslaga Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira