Vinícius Júnior í stuði þegar Brassar svöruðu fyrir sig Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. júní 2024 09:31 Vinícius Júnior fagnar fyrra marki sínu gegn Paragvæ. getty/Kevork Djansezian Eftir að hafa gert markalaust jafntefli í fyrsta leik sínum í Suður-Ameríkukeppninni vann Brasilía öruggan sigur á Paragvæ í nótt, 4-1. Vinícius Júnior var í stuði í leiknum í Las Vegas og skoraði tvívegis.
Brasilía komst lítt áleiðis gegn Kosta Ríka í fyrsta leik sínum í D-riðli og hann endaði með markalausu jafntefli. Brassar höfðu því ýmislegt að sanna í leiknum í Las Vegas í nótt og þeir sýndu hvers þeir eru megnugir. Brasilía fékk vítaspyrnu eftir hálftíma en Lucas Paquetá skaut framhjá. Fjórum mínútum síðar bætti hann fyrir vítaklúðrið þegar hann lagði upp mark fyrir Vinícius Júnior. Sávio skoraði annað mark Brassa skömmu fyrir hálfleik og þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri hálfleik skoraði Vinícius Júnior öðru sinni. Paragvæ minnkaði muninn í 3-1 með glæsimarki Omars Alderete en á 65. mínútu fékk Brasilía annað víti. Paquetá fór aftur á punktinn og skoraði að þessu sinni, 4-1. Paragvæar kláruðu leikinn manni færri eftir að Andrés Cubas var rekinn af velli á 81. mínútu. Brasilía er með fjögur stig í 2. sæti D-riðils, tveimur stigum á eftir Kólumbíu sem vann 3-0 sigur á Kosta Ríka í hinum leik riðilsins. Luis Díaz (víti), Davinson Sánchez og Jhon Córdoba skoruðu mörk Kólumbíumanna sem eru komnir áfram í átta liða úrslit.
Copa América Mest lesið „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Fleiri fréttir Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjá meira