Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. september 2024 12:15 Dagný Hróbjartsdóttir hlaut mikið lof úr sal fyrir ábendingar sínar um hlutverk foreldra í námi barna sinna. VísiR/vilhelm Móðir þriggja barna átta ára og yngri segir foreldra verða að fræða sig um uppeldi barna og skólastarf. Hafi þeir tíma til að hámhorfa hverja Netflix-seríuna á fætur annarri þá sé sannarlega tími til að sinna börnunum. Skólastjóri minnir á að hegðunarvandamál barna sé á ábyrgð foreldra þó dæmi séu um að reynt sé að koma þeim á þungar herðar kennara.
Þetta var meðal þess sem fram kom í pallborði á Menntaþingi 2024 sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Agavandamál, foreldrar og kennarar voru til meðal þess sem snert var á í pallborðinu sem byggð á spurningum úr sal. Dagný Hróbjartsdóttir, foreldri og stjórnarkona Heimilis og skóla, ræddi hlutverk foreldra þegar kemur að skólastarfi. Það sé rosalega mikilvægt. Nægur tími fyrir Netflix og símaskroll „Við þurfum að þora að setja mörk og standa við þau,“ sagði Dagný. Slík umræða þurfi að fara fram við á heimilinu, við eldhús- eða stofuborðið. Ef börn komi inn í skólann vön því að þeim sé sett mörk þá hafi það mikil áhrif til góðs varðandi starfið í skólastofunni. „Þetta byrjar allt inni á heimilinu við fæðingu,“ sagði Dagný. Foreldrar geti ekki byrjað að setja börnum mörk þegar þau fari í leikskóla eða grunnskóla. Hún sagði fyrsta verk hundaeigenda að fara á hundanámskeið þar sem fólk lærir að umgangast hunda sína og setja þeim mörk, skýran aga. Annað sé uppi á teningnum þegar von er á barni í heiminn. Pallborðsumræðurnar má sjá hér að neðan. „Við fáum barn í hendurnar og ekkert undirbýr okkur nema eðlisávísun sem er stundum mjög sterk,“ sagði Dagný. Samvirkar leiðbeiningar þurfi fyrir foreldra varðandi þessi atriði. „Ef við höfum tíma til að hámhorfa Netflix-seríur og eyða öllum þessum tíma í símanum þá höfum við tíma til að fræða okkur,“ sagði Dagný og uppskar mikið lófaklapp úr salnum. Katrín Jakobsdóttir er fundarstjóri.vísir/vilhelm Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætis- og menntamálaráðherra, var fundarstjóri og rifjaði upp atriði úr áramótaskaupi þegar foreldrar mættu í foreldraviðtal og voru í símanum allan tímann. Hegðun barna á ábyrgð foreldra Valdimar Víðisson, skólastjóri í Öldutúnsskóla, sagði orðið hrikalegt að fylgjast með nýlegum tölum um vanlíðan barna í skólakerfinu - sérstaklega hjá stúlkum en almennt hjá börnum. Álagið sé orðið gífurlega mikið í kennslustofunni og ábyrgð kennarans mikil að vera með allt saman hjá sér. Valdimar sagði mikilvægt að huga að ábyrgð foreldra, nemenda og kennara. Skýra hana. Fjölmennt er á menntaþinginu.vísir/Einar Árna „Það er skýrt í grunnskólalögum að ábyrgð á hegðun barna er hjá foreldrum,“ sagði Valdimar. Það þurfi að opna þá umræðu í skólasamfélaginu. „Það kom foreldri um daginn og spurði: „Hvað ætlið þið að gera í þessu að barnið mitt sé að slást og lemja?“ Hvað getum við gert ef ábyrgðin þín er komin yfir á okkur?“ spurði Valdimar og uppskar lófatak úr salnum. Þægilegt að geyma börnin í skólanum Dagný skaut á að hlutfall foreldra í salnum á Hilton í dag væri örugglega í kringum 95 prósent. „Við getum látið í ljós meiri áhuga á námi barnanna, bæði í leik- og grunnskólum,“ sagði Dagný. Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra er staddur á þinginu.vísir/vilhelm „Mín tilfinning er að okkur sem foreldrum finnist rosalega þægilegt að hugsa, já barnið mitt er þarna frá 8-16 og ég þarf ekkert að pæla í því á meðan,“ sagði Dagný. Foreldrar ættu að rétta fram hjálparhönd til kennarans, lýsa yfir vilja til samstarfs og samtals hvenær sem þurfa þykir. Þá sé búið að koma á sambandi sem sé erfitt fyrir kennara að hafa frumkvæði að í ljósi álags og alls sem gangi á í kennslustofunni. Tímabil í lífinu sem þurfi að sinna „Ef við tökum frumkvæði get ég fullyrt að það léttir líf þeirra sem eru að sinna börnunum okkar á daginn.“ Með því láti foreldrar í ljós virðingu sem störfin eigi skilið. Störf sem þessa dagana sé erfitt að manna eins og formaður Kennarasambandsins kom inn á í máli sínu. Þannig geti foreldrar komið þeim skilaboðum til foreldra að þeir sjái hvað kennarinn sé að gera, sinna barninu allan daginn, og foreldrar kunni að meta það. Séu þakklátir fyrir. Kennarar eru hugsi yfir stöðu mála.Vísir/Einar ÁRna „Ég á þrjú börn undir átta ára, ég er „in the thick of it“,“ sagði Dagný. Hún líti á þetta sem tímabil í lífi sínu sem foreldri. Hennar viðhorf sé að gefa þessu tímabili þann tíma sem það á skilið og gefa kennurum barnanna þá virðingu sem þeir eiga skilið. „Því ég trúi að ef ég næ að byggja góðan grunn, þá verður eftirleikurinn auðveldari og samstarfið betra.“
Leikskólar Grunnskólar Börn og uppeldi Mest lesið Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Innlent Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Erlent Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Innlent Fleiri fréttir Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Eins og að vera fangi í eigin líkama Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Sjá meira