Sport

Veðjar öllum á­góðanum af bar­daga sínum á sigur Tysons

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Katie Taylor og Jake Paul takast í hendur um veðmál þeirra um hvor vinni bardaga Pauls og Mikes Tyson.
Katie Taylor og Jake Paul takast í hendur um veðmál þeirra um hvor vinni bardaga Pauls og Mikes Tyson. getty/Ed Mulholland

Þótt veðbankar telji Jake Paul líklegri sigurvegara en Mike Tyson í bardaga þeirra eru ýmsir sem hafa trú á gamla heimsmeistaranum. Fáir meiri en hnefaleikakonan Katie Taylor.

Sú írska keppir einnig á sama kvöldi og Paul og Tyson og sat blaðamannafund fyrir viðburðinn.

Þar spáði hún Tyson sigri á Paul. Samfélagsmiðlastjarnan brást heldur illa við þessum spádómi Taylors og spurði hvað hún vildi leggja undir. Ekki stóð á svari hjá þeirri írsku sem lagði allan ágóða sinn af bardaganum undir.

Talið er að Taylor fái 4,7 milljónir punda fyrir bardagann gegn Amöndu Serrano í kvöld. Aldrei hefur kona fengið jafn mikið fyrir bardaga í boxsögunni.

Taylor sigraði Serrano þegar þær mættust í Madison Square Garden í New York í apríl 2022. Taylor hefur unnið 23 af 24 bardögum sínum á atvinnumannaferlinum. Eina tapið kom gegn Chantelle Cameron í maí í fyrra. Taylor hefndi svo fyrir það nokkrum mánuðum seinna.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×