Vinsælustu vörurnar í Signature 2024 Signature húsgögn 19. desember 2024 10:10 Lund borðstofuborð, Bellagio sófi og Kalmar hliðarborð koma einstaklega vel út heima hjá áhrifavaldinum Hildi Sif. Húsgagnaverslunin Signature er flutt í nýjan og glæsilegan sýningarsal að Stekkjarbakka 6 þar sem Garðheimar voru til húsa. Þar sameinast spennandi nýjungar í hönnun og vinsælar vörur sem hafa skapað versluninni sérstöðu.
View this post on Instagram A post shared by Signature Húsgögn (@signaturehusgogn) Afmælisfögnuður í nýju húsnæði Verslunin blés til veislu á dögunum í tilefni flutninganna og 20 ára starfsafmælis. Fjölmargir gestir litu við í Stekkjarbakka og fögnuðu tímamótunum, nutu veitinga og skoðuðu nýja sýningarsalinn. Fjöldi gesta mætti á opnunarviðburð Signature á nýjum stað. Hér má fletta í gegnum myndir frá afmælisviðburðinum. Samstarf við skemmtilega aðila Signature er „concept store“ þar sem allir þættir spila saman. Ilmur, tónlist, orka og tilfinning skipta miklu máli og nýi sýningarsalurinn snýst um svo miklu meira en bara húsgögn. Hvert rými hefur sitt einstaka litaþema, þróað í samstarfi við litasérfræðinga Slippfélagsins. Slippfélagið hefur þróað litaþema í samstarfi við Signature. Litir og veggfóður í sýningarsalnum eru merkt með kóða frá Slippfélaginu. Litir og veggfóður eru merkt með kóða frá Slippfélaginu, sem auðveldar viðskiptavinum að fá innblástur fyrir litapörun með húsgögnum. Litlu atriðin sem skapa heildstæða tilfinningu Charlotta Rós markaðsstjóri Signature, Anna Bergmann markaðsstjóri Slippfélagsins og Ragnhildur Helgadóttir eigandi vínkonur.is Þá er Signature í samstarfi við vefverslunina Vínkonur.is, sem gerir viðskiptavinum kleift að sækja vínpantanir beint í sýningarsalinn. Oft eru það litlu atriðin sem við tökum ekki einu sinni eftir, en saman skapa þau heildstæða tilfinningu eða upplifun sem gerir Signature að einstökum áfangastað fyrir hönnun og innblástur. Samspil áferðar og lita skapa heildstæða stemningu. Í Signature er sannarlega hægt að fá innblástur. Allir geta notið sín í sýningarsal Signature. Næg bílastæði á nýja staðnum Aðgengi var stór þáttur í ákvörðuninni um að flytja verslunina og eftir að hafa skoðað ýmsar staðsetningar varð Stekkjarbakki fyrir valinu. Verslunin er nú í alfaraleið, á einni hæð og næg bílastæði. Böðvar, eigandi Signature og Arnar frá Slippfélaginu en Signature og Slippfélagið eru í samstarfi. Þá segir Böðvar Friðriksson, eigandi Signature, útisvæði í undirbúningi á nýja staðnum þar sem garðhúsgögn verða sýnd með vorinu en Signature hóf starfsemi á sínum tíma sem sérverslun með útihúsgögn. Í dag er í boði mikið úrval af hönnunarhúsgögnum og fylgihlutum fyrir heimili og bæði fyrirtæki og veitingastaði. „Í nýju húsnæði getum við lagt ennþá meiri áherslu á upplifun og persónulega þjónustu,“ segir Böðvar. Vinsælar vörur og trend Hönnunarstraumar dagsins í dag einkennast af bogadregnum formum, ávölum línum og Bouclé áklæði. Fólk blandar saman áferðum og sjá má áhrif frá náttúrunni í nýjum vörum eins og tálgaðri og hrárri gegnheilli eik og perluhvítum steini. Lund borðstofuborð, Bellagio sófi og Kalmar hliðarborð koma einstaklega vel út í nýju íbúðinni hjá áhrifavaldinum Hildi Sif sem hún og Páll Orri keyptu á dögunum. Um tíma þurfti allt að passa saman en nú er það andrúmsloftið og stíllinn sem skipta meira máli en að hlutirnir séu nákvæmlega eins. Að hanna heimilið er skapandi ferli. Það snýst ekki um að fylgja ákveðnum reglum heldur finna það sem skapar vellíðan á heimilinu. Signature" eða "centerpiece" húsgögn gefa heimilinu sérstöðu. Það getur verið drauma stóllinn, við hliðina á uppgerðu kaffiborði sem fannst á markaði. Hvert húsgagn segir sína sögu. Andrúmsloftið og stíllinn skapa heimilislega stemningu. Stórglæsilegur sófi sem "signature piece" í stofu. Margar sniðugar hönnunarlausnir er að finna í Signature. Hönnun á góðu verði allt árið um kring Hróbjartur Böðvarsson, rekstrarstjóri segir áhersluna á hönnunarvöru í háum gæðaflokki og samkeppnishæft verð. Signature fylgi þeirri stefnu að bjóða vöruna á sanngjörnu verði allt árið um kring í stað mikilla reglubundinna afslátta. „Við trúum því að heiðarleiki gagnvart viðskiptavinum okkar sé það sem skapar traust og langlífi í rekstrinum,“ segir hann. „Við verðum með lokað frá 22. desember til 5. janúar því fjölskyldufyrirtækið okkar fer erlendis til að fagna frábæru ári! Útsalan hefst svo fljótlega í janúar þar sem að fólki gefst kostur á að panta húsgögn og smávöru með góðum afslætti og stuttum afgreiðslutíma." „Fjölmörg áklæði og litir í boði fyrir sérpantaða sófa og stóla." Einnig höfum við birt á Instagram þegar við skiptum út sýningareintökum og getur fólk þá gert frábær kaup með allt frá 20%-30% afslætti. Það fylgjast margir vel með því þau eintök fara fljótt.“
Hús og heimili Tíska og hönnun Verslun Mest lesið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira