Innlent

Bíll fór á hliðina á Suður­lands­vegi

Jón Þór Stefánsson skrifar
Mynd frá vettvangi.
Mynd frá vettvangi. Bryndís

Bíll með aftanívagn fór á hliðina á Suðurlandsvegi til móts við Eystri skóga í dag. Enginn slys urðu á fólki.

Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við fréttastofu.

Vegakafli Suðurlandsvegar er þegar þetta er skrifað lokaður vegna atviksins á meðan vinna á vettvangi fer fram.

Þorsteinn segir að ekki liggi fyrir hvað hafi átt sér stað, bara að bíllinn hafi farið á hliðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×