Danska ríkið kaupir Kastrup Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. desember 2024 14:39 Nicolai Wammen fjármálaráðherra Danmerkur segir um heillaspor að ræða. EPA-EFE/STEPHANIE LECOCQ Danska ríkið hyggst kaupa 59,4 prósenta hlut í Kastrup flugvelli af lífeyrissjóðnum ATP. Ríkið átti áður rúmlega fjörutíu prósenta hlut í flugvellinum og mun því eiga 98 prósenta hlut eftir kaupin.
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kemur fram að kaupin muni nema 32 milljörðum danskra króna eða því sem nemur rúmlega 625 milljörðum íslenskra króna. Þar segir ennfremur að horft verði til þess að minnka eignarhlutinn til lengri tíma í 50,1 prósent, ríkið haldi þar með meirihluta sínum. Flugvöllurinn er skráður á danska hlutabréfamarkaðinn og fer ríkið með rétt rúmlega fjörutíu prósenta hlut, lífeyrissjóðir rest. Fjármálaráðherra Danmerkur Nicolai Wammen segir að kaupin séu til þess fallin að treysta rekstrargrundvöll flugvallarins, sem gegni mikilvægu innviðahlutverki í Danmörku. Fram kemur í frétt DR að samtök atvinnulífs í Danmörku hafi fagnað kaupunum. Hlutabréf í vellinum hafa hækkað um tæplega helming eftir að kaupin voru tilkynnt.
Danmörk Fréttir af flugi Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira