ÍR byrjar nýja árið með besta hætti Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2025 15:30 Katrín Tinna Jensdóttir skoraði fjögur mörk fyrir ÍR gegn ÍBV í dag. vísir/Diego ÍR byrjar árið 2025 af krafti í Olís-deild kvenna í handbolta og tvöfaldaði sigurfjölda sinn með góðum sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum í dag.
ÍR vann aðeins einn af níu leikjum sínum í deildinni fyrir áramót, gegn botnliði Gróttu, en gerði einnig tvö jafntefli og var annað þeirra gegn ÍBV. ÍR-ingar unnu svo af nokkru öryggi í Eyjum í dag, 26-23, eftir að hafa verið 15-13 yfir í hálfleik með því að skora síðustu fjögur mörk fyrri hálfleiksins. Eyjakonur skoruðu ekki mark á síðustu átta mínútum fyrri hálfleiksins. ÍR komst svo í 21-16 um miðjan seinni hálfleik og hélt ÍBV í nokkuð þægilegri fjarlægð til loka, þó að Eyjakonur næðu að minnka muninn í tvö mörk á lokamínútunni áður en Sylvía Sigríður Jónsdóttir kórónaði flottan leik sinn með lokamarki ÍR. Ingunn María Brynjarsdóttir varði vel í marki ÍR og er skráð með 15 varin skot hjá HB Statz. Sylvía Sigríður var markahæst gestanna með átta mörk og Katrín Tinna Jensdóttir kom næst með fjögur mörk. Hjá ÍBV var Sunna Jónsdóttir markahæst með átta mörk. Með sigrinum komst ÍR upp að hlið ÍBV og Stjörnunnar í 5.-7. sæti en liðin eru með sex stig, tveimur stigum meira en botnlið Gróttu og tveimur minna en Selfoss. Efstu þrjú liðin, Valur (20), Fram (16) og Haukar (14) eru lengra frá.
Olís-deild kvenna ÍR ÍBV Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira