Viðskipti innlent

Hópuppsögn hjá Sidekick Health

Árni Sæberg skrifar
Tryggvi Þorgeirsson er læknir og forstjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins Sidekick Health.
Tryggvi Þorgeirsson er læknir og forstjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins Sidekick Health. Vísir/Vilhelm

Sidekick Health hefur tilkynnt um fækkun í starfsmannahópi félagsins um 55 stöðugildi, sem jafngildir um 20 prósent starfsmanna. Því er um hópuppsögn að ræða. Af þeim eru 22 stöðugildi hér á landi en önnur erlendis.

Í tilkynningu frá Sidekick segir að uppsagnirnar séu í kjölfar 100 prósent aukningar á starfsmannafjölda á síðustu átján mánuðum, einkum vegna yfirtöku á tveimur félögum í Þýskalandi, sem hafi nú verið samþætt í rekstur Sidekick. Þessar aðgerðir miði að því að nýta samlegð, tryggja sjálfbæran vöxt og styðja við framtíðaruppbyggingu félagsins.

Félagið muni straumlínulaga rannsókna- og þróunarstarf auk stjórnendakostnaðar, en auka við fjárfestingu í sölu- og markaðsstarfi. Með þessu styrki Sidekick grundvöll sinn til frekari vaxtar og auki getu sína til að ná til fleiri notenda með meðferðum sínum sem sé nú ávísað af yfir 16 þúsund læknum í Þýskalandi og dreift af sjúkratryggjendum og lyfjafyrirtækjum á alþjóðavísu. Að auki muni tvær nýjar meðferðir bætast við á árinu. Annars vegar til að styðja við geðheilsu fólks sem greinst hefur með krabbamein og hins vegar til að bæta einkenni og lífsgæði kvenna á breytingaskeiði.

„Sidekick er staðfast í þeirri vegferð sinni að nýta tæknina til að bæta heilbrigðisþjónustu á yfir 20 sjúkdómasviðum. Við erum þakklát fyrir ómetanlegt framlag alls starfsfólks okkar, bæði núverandi og fráfarandi, til þeirrar vegferðar. Við munum tryggja að það einstaka samstarfsfólk sem við þurfum því miður að kveðja fái stuðning og úrræði til að takast á við næstu skref,“ er haft eftir Tryggva Þorgeirssyni, forstjóra Sidekick Health.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×