Viðskipti innlent

Rann­veig kjörin heiðurs­félagi

Atli Ísleifsson skrifar
Anna Margrét Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri FVH, Rannveig Sigurðardóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóri peningastefnu og Telma Eir Aðalsteinsdóttir, varaformaður FVH.
Anna Margrét Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri FVH, Rannveig Sigurðardóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóri peningastefnu og Telma Eir Aðalsteinsdóttir, varaformaður FVH.

Félag viðskipta- og hagfræðinga hefur kosið Rannveigu Sigurðardóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóra peningastefnu, heiðursfélaga FVH.

Í tilkynningu frá FVH segir að með kjörinu séu Rannveigu þökkuð hennar störf á sviði hagvísi í efnahagslífi Íslands en einnig fyrir einstakt framlag sitt til félagsins.

„Rannveig Sigurðardóttir er hagfræðingur með umfangsmikla reynslu í efnahagsmálum og peningastefnu. Hjá Seðlabankanum gegndi hún ýmsum ábyrgðarstöðum, þar á meðal sem aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs og ritari peningastefnunefndar. Hún var einnig staðgengill aðalhagfræðings bankans.

Í júlí 2018 var Rannveig skipuð aðstoðarseðlabankastjóri til fimm ára. Við sameiningu Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins 1. janúar 2020 varð hún varaseðlabankastjóri peningastefnu. Rannveig hefur setið í peningastefnunefnd frá stofnun hennar 2009 en næsta stýrivaxtaákvörðun nefndarinnar verður tekin þann 8. febrúar n.k.

Í störfum sínum fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans lagði Rannveig áherslu á að upplýsingar um áhrifavalda við vaxtaákvörðun nefndarinnar yrðu aðgengilegar og settar fram á skiljanlegan máta fyrir almenning m.a. í greinagóðum fundargerðum nefndarinnar og á blaðamannafundum í kjölfar vaxtaákvörðunar,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Önnu Margréti Steingrímsdóttur, framkvæmdastjóra FVH, að Rannveig hafi nýlega lokið störfum hjá Seðlabankanum eftir tæplega 25 ár í starfi. „Við þetta tilefni fannst stjórn Félags viðskipta- og hagfræðinga við hæfi að heiðra þessa áhrifamiklu konu í íslensku efnahagslífi sem ávallt hefur gefið sér tíma til að styðja við félags- og fundarstörf FVH með þátttöku á viðburðum félagsins en óhætt er að fullyrða að hún sé sá viðmælandi sem hefur oftast tekið þátt í viðburðum félagsins síðastliðin ár,” segir Anna Margrét.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×