Upp­gjörið: Grinda­vík - Stjarnan 87-108 | Stjarnan átti í litlum vand­ræðum með Grinda­vík

Hjörvar Ólafsson skrifar
Hilmar Smári Henningsson var stigahæstur á vellinum í kvöd. 
Hilmar Smári Henningsson var stigahæstur á vellinum í kvöd.  Vísir/Jón Gautur

Stjarnan fór með afar sannfærandi sigur af hólmi þegar liðið sótti Grindavík heim í Smárann í Kópavogi í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 87-108 toppliði deildarinnar, Stjörnunni í vil.

Það var í raun aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda í þessum leik. Stjörnumenn hófu leikinn af mun meiri krafti en það var aðeins undir lok fyrsta leihkluta sem Grindvíkingar bitu eitthvað frá sér. 

Staðan var jöfn 20-20 eftir fyrsta fjórðung en strax í öðrum leikhluta tóku leikmenn Stjörnunnar aftur öll völd á vellinum. Gestirnir leiddu 35-48 í hálfleik og í seinni hálfleiknum hélst munurinn í kringum 20 stigin og Grindavík náði aldrei að velgja toppliðinu almennilega undir uggum. 

Niðurstaðan þægilegur 21 stiga sigur Stjörnunnar sem trónir á toppnum með 26 stig, tveimur stigum á undan Tindastóli sem lagði Hött að velli í kvöld. Grindavík er hins vegar með 16 stig í fjórða til fimmta sæti með 16 stig líkt og Valur sem hafði betur gegn Njarðvík í kvöld. 

Þar fyrir neðan eru svo Álftanes, Keflavík, ÍR, KR og Þór Þorlákshöfn öll með 14 stig en Álftnesingar komust upp að hlið þessum liðum með sigri á móti ÍR í leik liðanna í kvöld. 

Jóhann Þór Ólafsson var ekki sáttur við lærisveina sína. vísir/Anton

Jóhann Þór: Vorum slegnir utan undir

„Við náðum aldrei neinu flugi í okkar leik og Stjörnumenn voru einfaldlega miklu betri í þessum leik. Við vorum slegnir utan undir strax í upphafi leiks og náðum okkur aldrei almennilega á strik. Það veldur mér áhyggjum hversu mikið betri þeir vorum á öllum sviðum í þessum leik,“ sagði Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur. 

„Við erum búnir að vera í lægð síðan um miðjan nóvember og við verðum að finna lausnir á því hvernig við náum að bæta leik liðsins. Það vantar alla orku og gleði í liðið og frammistaðan er eftir því. Við verðum að snúa bökum saman og snúa þessu í rétta átt,“ sagði Jóhann Þór enn fremur. 

„Það er eins og formaðurinn standi í hurðinni og dragði leikmenn og mig sjálfan inn á parketið til þess að spila þessa leiki. Það er engin gleði og það vantar allan vilja til þess að gera það sem þarf til þess að landa sigrum í höfn,“ sagði hann svekktur út í sjálfan sig og lærisveina sína. 

Grindvíkingar hafa ákveðið að skipta um Bandaríkjamann en De­von Thomas hefur verið leystur undan samningi. Jeremy Pargo sem á að leysa hann af hólmi og lappa upp á leik Grindavíkurliðsins er ekki kominn til landsins en Jóhann Þór segir að fjarvera hans geta ekki útskýrt muninn á liðunum í kvöld. 

„Við getum fengið til liðs við okkur 58 leikmenn en ef að andinn er ekki meiri í þeim leikmönnum sem eru til staðar inni á vellinum þá mun þetta ekkert breytast og við höldum bara áfram í sama horfinu. Nú er ekkert sem heitir lengur og við þurfum að grafa djúpt eftir þeirri orku og gleði sem til þarf til þess að vinna körfuboltaleiki,“ sagði Jóhann Þór vonsvikinn. 

Baldur Þór: Frábær frammistaða á báðum endum

„Við vorum bara mjög flottir í þessum leik og þetta var heilsteypt frammistaða hjá liðinu. Það gladdi mig mest hvað spilamennskan var góð á báðum endum vallarins. Við slökuðum heldur ekki á klónni þrátt fyrir að hafa byggt upp gott forskot sem er jákvætt,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar. 

„Spiritið frá þeim sem voru að spila og bekknum var gott allan leikinn og það smitaði út frá sér inn í spilamennsku leikmanna. Það lögðu allir sem komu inn á gólfið eitthvað í púkkinn og þannig viljum við hafa það. Liðsheildin sigldi þessum sigri að mínu mati,“ sagði Baldur Þór alsæll með alla Stjörnumenn sem komu að þessum leik. 

Stjarnan frumýndi nýjan leikmann í Smáranum í kvöld en Slóveninn Jaka Klobucar spilaði sinn fyrsta leik í Stjörnutreyjunni. Baldur Þór segir hann muni nýtast liðinu vel þrátt fyrir brösuga byrjun: 

„Jaka var í smá ströggli á köflum í þessum leik en sýndi einnig hvað hann getur gefið okkur. Hann mun komast betur inn í leik okkar og reynast okkur vel í baráttunni sem fram undan er. Ég er handviss  um það,“ sagði þjálfari Garðbæinga um nýjasta liðsmann sinn.  

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var sáttur með vel unnin störf leikmanna sinna. Vísir/Anton Brink

Atvik leiksins

Jase Fabres átti skemmtilegustu tilþrifin þegar hann blokkaði leikmann Grindavíkur. Fabres lét ekki þar við sitja, fór beint í það að geysast upp völlinn og troða boltanum ofan í á hinum enda vallarins.  

Stjörnur og skúrkar

Hilmar Smári Henningsson var stigahæsti leikmaður vallarins með sín 30 stig. Jase Fabres kom þar á eftir með 25 stig en Fabres reif auk þess niður 11 fráköst og varði fjögur skot. Ægir Þór Steinarsson hafði hægt um sig í stigaskorun en mataði þess í stað samherja sína með 10 stoðsendingum. 

Deandre Kane skoraði mest fyrir Grindavík, 24 stig, og Lagio Grantsaan kom næstur með 21 stig. 

Dómarar leiksins

Dómarar leiksins þeir, Davíð Tómas Tómasson, Jakob Árni Ísleifsson og Stefán Kristinsson, stóðu sig með stakri prýði og fá átta í einkunni fyrir vel unnin störf. 

Stemming og umgjörð

Ef sama orka hefði verið í leikmönnum Grindavíkur og stuðningsmönnum liðsins þá hefði leikurinn farið betur. Mest allan leikinn létu Grindjánar vel í sér heyra og hvöttu sitt lið. Undir lokin fór athylgin kannski helst til mikið í það að láta í veðri vaka sterkar skoðanir sínar á dómurum leiksins. 

Þessu utan voru liðin rækilega studd af stuðningsmönnum sínum og stemmingin með fínasta móti. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira