Bíó Paradís valið eitt af 21 svölustu kvikmyndahúsum heims Lovísa Arnardóttir skrifar 9. apríl 2025 23:04 Ása dagskrárstjóri segir þetta magnaða viðurkenningu fyrir kvikmyndahúsið. Samsett Ameríska tímaritið og vefmiðillinn Variety hefur útnefnt Bíó Paradís sem eitt af 21 svölustu kvikmyndahúsum um allan heim. Í umsögn er talað um hönnun innanhús og að það sé hægt að leigja það fyrir viðburði. Þá er einnig talað um aðgengi að erlendum kvikmyndum.
Í umfjöllun Variety segir að það séu margar leiðir til að meta það hvort að kvikmyndahús sé gott, til dæmis arkitektúrinn og sögulegt gildi hússins. Það séu þó alls ekki einu þættirnir sem sé hægt að líta til og til að geta valið mest svölustu kvikmyndahúsin hafi þau einnig litið til tækninnar sem er notuð í mynd og hljóði, til dagskrár og umgjarðar kvikmyndahússins og til aðstöðunnar sjálfrar fyrir gesti. Á listanum er aðeins að finna kvikmyndahús sem eru aðgengileg almenningi, sem sýna aðallega kvikmyndir og eru opin allan ársins hring á sama staðnum. Á listanum, auk Bíó Paradísar, er að finna kvikmyndahús á Indlandi, í Bretlandi, Suður-Kóreu, Frakklandi, Hollandi, Grikklandi, Dubai og víðar Mikill heiður „Þetta kom algjörlega að óvörum, og það var engin önnur en Mimi Plauché, listrænn stjórnandi Chicago Film Festival, sem sendi mér ótrúlega flott og einlæg skilaboð þar sem hún óskaði okkur til hamingju með þennan gríðarlega heiður. Þannig við komumst að þessu frá erlendum fagaðila sem er í raun mjög persónuleg viðurkenning frá virtri fagmanneskju í kvikmyndahátíðabransanum í Bandaríkjunum – og það segir sitt,“ segir Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri Bíó Paradís. Um Bíó Paradís segir í grein Variety að ytra útlit hússins segi ekki mikið um innihald þess. Það sé aðeins fimmtán ára gamalt en að kvikmyndahúsið hafi þegar þurft að berjast við yfirvofandi lokun og komist hjá henni. Þá er tekið fram að kvikmyndahúsið sé það eina í miðborg bæjarins og eina kvikmyndahúsið þar sem hægt sé að sjá listrænar myndir og erlendar, það er ekki amerískar. „Anddyrið er algjörlega þakið þeirra eigin túlkunum á kvikmyndaplakötum sem eru gerð af íslenskum listamönnum. Allt frá Shining að Enter de Dragon og Omen fær sitt eigið listaverk,“ segir í lýsingunni. Þá er tekið fram að hægt sé að leigja forsalinn fyrir veislur og að þegar blaðamaður blaðsins hafi litið við hafi starfsfólk verið að undirbúa barnaafmæli. Plakötin sem eru teiknuð af íslenskum listamönnum. Bíó Paradís Stórkostlegar fréttir Ása segir þetta skipa kvikmyndahúsinu í hóp bestu og áhrifamestu listrænna kvikmyndahúsa um allan heim. „Þetta eru stórkostlegar fréttir og hefur greinarhöfundur sérstakt orð á því að galleríið sé þakið endurgerðum kvikmyndaplakötum eftir innlenda listamenn, en hugmyndina fékk Hugleikur Dagsson sem er einn af dagskrárstjórum Svartra Sunnudaga- dagskrárlið í bíóinu þar sem költ og klassík ræður ríkjum.“ Hún segir í stórkostlegt að Bíó Paradís sé stillt upp við hlið kvikmyndahúsa eins og Electric í London Nitehawk í Brookly, TCL Chinese Theatre á Hollywood Boulevard og Egyptian Theatre í LA og Eden kvikmyndahúsinu þeirra Lumière-bræðra.“ Salirnir eru nokkrir í húsinu. Hulda Margrét „Það er fæðingarstaður kvikmyndanna sjálfra. Þetta er í raun alveg stórkostleg upptalning í grein Variety. Þetta er ekki bara viðurkenning fyrir Bíó Paradís – þetta er viðurkenning á íslenskri kvikmyndamenningu og því sem við höfum staðið fyrir í gegnum árin. Þetta er alþjóðleg staðfesting á því að við erum að gera eitthvað rétt – og við erum ekki hætt,“ segir Ása. Bíó Paradís opnaði árið 2010 en í húsnæðinu var fyrir það rekið kvikmyndahúsið Regnboginn.
Kvikmyndahús Bíó og sjónvarp Reykjavík Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira