Skoðun

Hittumst á rauðum sokkum 1. maí

Finnbjörn A. Hermannsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Magnús Þór Jónsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa

Á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí á hverju ári söfnumst við saman, fögnum áfangasigrum verkalýðshreyfingarinnar og leggjum fram kröfur okkar til að móta framtíðarsýn um það samfélag sem við viljum byggja fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. Í tilefni af Kvennaári 2025 munu konur taka yfir sviðið í baráttudagskrá stéttarfélaga um land allt.

Við í samtökum launafólks höfum tekið höndum saman við samtök kvenna, femínista, fatlaðs fólks og hinsegin fólks og lýst því yfir að árið 2025 sé Kvennaár þar sem sérstök áhersla er lögð á upprætingu kynbundins ofbeldis og launamunar kynjanna. Þrátt fyrir að margt hafibreyst til batnaðar undanfarna áratugi er jafnréttisbaráttunni ekki lokið. Ísland er til að mynda fyrir neðan meðaltal í samanburði OECD og ofbeldi gegn konum er útbreitt. Við erum líka minnt á um þessar mundir að stöðugt þarf að standa vörð um mannréttindi – bakslags gætir í jafnréttismálum.

Konur taka yfir sviðið um land allt

Í Reykjavík mun tilvísun í 1. maí 1970 setja sterkan svip á gönguna. Sá dagur markaði upphaf Rauðsokkahreyfingarinnar þegar konur á rauðum sokkum mættu í kröfugöngu verkalýðsins með risastóra Venusarstyttu og lögðu fram kröfur sínar um kvenfrelsi. Fjölmiðlar sögðu frá því að Rauðsokkahreyfingin hefði borið styttuna í óþökk fulltrúaráðs verkalýðshreyfingarinnar og nokkuð stapp var um hvort þær fengju að taka þátt í göngunni en eftir miklar samningaviðræður fengu þær á endanum að ganga aftast. Líklega grunaði engan þá að Rauðsokkahreyfingin ætti eftir að breyta sögu tuttugustu aldarinnar. Nú, 55 árum síðar, býður fulltrúaráð verkalýðsins í Reykjavík konum á rauðum sokkum að ganga fremst í kröfugöngunni á Kvennaári 2025. Á útifundinum á Ingólfstorgi mun fundarstýra, ræðufólk, tónlistarfólk og táknmálstúlkur vera konur og þá munu Rauðsokkur stíga á svið og segja nokkur orð.

Konur munu einnig kveða sér hljóðs víðar en í Reykjavík. Hringinn í kringum landið taka konur sér stöðu fremst í baráttudagskrám stéttarfélaganna í tilefni dagsins. Þær sjá um hátíðarræður, fundarstjórn, tónlist, skemmtiatriði, fánaburð, sýningahald, veitingar og fjölbreytta skipulagningu. Kvennakórar brýna raust sína víða og konur stilla saman strengi sína í fleiri en einum skilningi og sameinast gegn bakslagi í jafnréttisbaráttunni sem nú á sér stað.

Við hvetjum allt launafólk til að sýna samstöðu í verki og taka þátt í kröfugöngu eða skipulagðri dagskrá samtaka launafólks um allt land.

Gleðilegan baráttudag þann 1. maí.

Höfundar eru Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ,  Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM,  Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og  Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.




Skoðun

Skoðun

Konur og menntun

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Sjá meira


×