Innlent

Grunaður um að hafa frelsissvipt ferða­mann í nokkrar klukku­stundir

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Lögregluþjónar standa fyrir utan hús Orlofsnefndar húsmæðra að Hverfisgötu 69.
Lögregluþjónar standa fyrir utan hús Orlofsnefndar húsmæðra að Hverfisgötu 69. Thorgeir Olafsson

Maður um fertugt er grunaður um að hafa haldið erlendum ferðamanni í gíslingu í nokkrar klukkustundir auk þess sem hann hafi verið vopnaður byssu. Hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrr í dag af Héraðsdómi Reykjavíkur samkvæmt umfjöllun RÚV.

Líðan ferðamannsins er góð eftir atvikum að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann staðfesti að um frelsissviptingu hafi verið að ræða í samtali við fréttastofu. Ferðamaðurinn var hnepptur í gíslingu aðfaranótt fimmtudags en lögreglan fékk veður af því í morgun. Óvíst er hversu lengi ferðamaðurinn var í haldi en um sé að ræða nokkrar klukkustundir.

Greint var frá fyrr í morgun að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um mann vopnaðan skotvopni á Hverfisgötu. Sérsveitin var einnig kölluð á vettvang en atvikið átti sér stað um klukkan átta. Mikill viðbúnaður viðbragðsaðila var á svæðinu líkt og sést á ljósmyndum sem bárust fréttastofu.

„Lögreglan fékk tilkynningu um aðila sem væri vopnaður skotvopni þarna í íbúð við Hverfisgötu. Þess vegna var götum lokað og lögreglan með aðgerð,“ sagði Ásmund­ur Rún­ar Gylfa­son, aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu í morgun.

RÚV greindi fyrst frá því að maðurinn hafi tekið erlendan ferðmann í gíslingu á heimili sínu við Hverfisgötu. Hann hafi verið leiddur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Þá segir að maðurinn hafi oft komist í kast við lögin en stutt er síðan hann lauk afplánun.

Fréttin var uppfærð 23:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×