Úlfar hættir sem lögreglustjóri Atli Ísleifsson skrifar 13. maí 2025 13:20 Úlfar Lúðvíksson hefur gegnt embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum frá árinu 2020. Fimm ára samningur hans rennur út í haust. Vísir/Einar Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, mun láta af embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum á miðnætti. Hann segir að Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hafi tjáð sér að staða lögreglustjórans á Suðurnesjum yrði auglýst í haust og að samningur hans yrði ekki endurnýjaður.
Þetta kemur fram í frétt RÚV. Haft er eftir Úlfari að hann hafi verið boðaður á fund dómsmálaráðherra og ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu í gær. Þar hafi honum verið sagt að samningurinn fæli í sér að hann myndi starfa fram í nóvember. Hann hafi þá ákveðið að biðjast lausnar á staðnum og mun hann því láta af störfum á miðnætti. Ekkert tekið fram um efni fundarins Úlfar segir í samtali við fréttastofu að hann hafi fengið fundarboð frá dómsmálaráðherra síðastliðinn föstudag um að hitta sig klukkan 11 á mánudagsmorgni. Ekkert hafi þá verið tekið fram um efni fundarins. Hann segir að á fundinum hafi sér verið tilkynnt um að ráðherrann hafi tekið ákvörðun um að auglýsa stöðuna. Þegar honum hafi verið sagt að staðan yrði auglýst og samningur við hann ekki endurnýjaður hafi hann beðist lausnar á staðnum sem orðið hafi verið við. „Ég átti ekki von á þessu. Þegar eru þær þakkir sem ég fæ frá ráðherranum fyrir mín störf,“ segir Úlfar. Hann vísar annars á dómsmálaráðherra til að ræða efni fundarins og hvað hafi þar átt sér stað. Ljúfur og góður fundur með starfsfólki Úlfar var á leið heim af fundi á lögreglustöðunni þegar fréttastofa náði tali af honum. Hann hafi þar verið að kveðja sitt starfsfólk. „Það var ljúfur og góður fundur,“ segir Úlfar. Í samtali við RÚV segir Úlfar að málið hafi auðvitað komið við sig. „Þetta eru kaldar kveðjur frá dómsmálaráðherra fyrir mín störf,“ er haft eftir Úlfari. Úlfar Lúðvíksson var skipaður í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum árið 2020. Hann hafði þá meðal annars gegnt embætti lögreglustjóra á Vesturlandi og á Vestfjörðum og embætti sýslumanns á Ísafirði og Patreksfirði. Hann hafði jafnframt verið formaður Lögreglustjórafélagsins frá 2016.
Lögreglan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vistaskipti Reykjanesbær Grindavík Suðurnesjabær Vogar Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Sjá meira