Inter missti af gullnu tækifæri þegar Napoli missteig sig Smári Jökull Jónsson skrifar 18. maí 2025 20:58 Pedro fagnar fyrir framan svekkta leikmenn Inter. Vísir/Getty Napoli heldur efsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar ein umferð er eftir af deildinni. Inter missti af gullnu tækifæri að ná efsta sætinu í kvöld.
Fyrir umferðina í kvöld var Napoli á toppi Serie A deildarinnar með 78 stig en Inter stigi á eftir öðru sæti. Napoli mætti Parma á útivelli og skapaði sér fá færi í leiknum. Toppliðinu tókst ekki að skora og leiknum lauk með markalausu jafntefli. Þetta þýddi að Inter gat með sigri gegn Lazio á heimavelli náð efsta sætinu af Napoli. Yann Biseck kom Inter yfir í fyrri hálfleik en á 70. mínútu jafnaði hinn spænski Pedro metin fyrir gestina. Hollendingurinn Denzel Dumfries kom Inter í forystu á nýjan leik tíu mínútum síðar og þegar allt stefndi í sigur Inter skoraði Pedro sitt annað mark á lokamínútu leiksins og jafnaði metin í 2-2 sem urðu lokatölur leiksins. Napoli heldur því efsta sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina og Inter er áfram í öðru sæti. Napoli mætir Cagliari á heimavelli í lokaumferðinni en Inter á leik gegn Como á útivelli. Þórir og Mikael Egill í byrjunarliði Þórir Jóhann Helgason var í byrjunarliði Lecce sem vann Torino 1-0 á heimavelli. Þórir Jóhann var tekinn af velli í hálfleik en sigurmark Lecce kom í upphafi síðari hálfleiks. Þá var Mikael Egill Ellertsson í byrjunarliði Venezia sem tapaði 3-0 gegn Cagliari. Mikael Egill var tekinn af velli á 70. mínútu í stöðunni 2-0. Bjarki Steinn Bjarkason sat allan tímann á varamannabekk Venezia. Öll úrslit í Serie A Roma - AC Milan 3-1Cagliari - Venezia 3-0Fiorentina - Bologna 3-2Inter - Lazio 2-2Juventus - Udinese 2-0Lecce - Torino 1-0Monza - Empoli 1-3Parma - Napoli 0-0Verona - Como 0-0
Ítalski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira