Stórleikur Janusar og fimm marka forskot ekki nóg í Íslendingaslag um titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. maí 2025 19:09 Janus Daði Smárason lék vel í kvöld en það dugði ekki til. VÍSIR/VILHELM Aron Pálmarsson er einu skrefi nær enn einum meistaratitlinum á ferlinum eftir sigur Veszprém í fyrsta leiknum í úrslitaeinvíginu um ungverska meistaratitilinn í handbolta.
Veszprém vann leikinn með tveggja marka mun, 34-32, en gestirnir i Szeged voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 16-14. Veszprém er deildarmeistari og á heimavelli í þessum leik. Liðið var í vandræðum framan af leik en sýndi styrk sinn þegar á leið leikinn. Janus Daði Smárason átti góðan leik fyrir Szeged og var með sjö mörk úr átta skotum. Það er svekkjandi fyrir hann að stórleikur hans og gott forskot í fyrri hálfleik hafi ekki dugað. Janus nýtti fyrstu þrjú skotin sín í fyrri hálfleik en Szeged var mest fimm mörkum yfir í hálfleik (12-7, 13-8, 14-9 og 15-10), en leiddi 16-14 í leikhléi eftir 4-1 endasprett Veszprém í hálfleiknum. Veszprém hélt áfram í seinni hálfleik og náði frumkvæðinu í leiknum. Jafnaði fyrst í 20-20 og komst síðan yfir í 21-20. Szeged náði aftur forystu en í stöðunni 27-26 fyrir gestina náði Veszprém öðrum frábærum kafla sem skilaði liðinu þriggja marka forystu. Það lið verður ungverskur meistari sem fyrr vinnur tvo leiki. Næsti leikur er á heimavelli Szeged. Aron Pálmarsson klikkaði á báðum skotum sínum í fyrri hálfleiknum og náði heldur ekki að nýta skot sitt í seinni hálfleik. Bjarki Elíasson var ekki með Veszprém í kvöld. Frakkinn Hugo Descat var frábær hjá Veszprém en hann skoraði tólf mörk í leiknum.
Ungverski handboltinn Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira