Erlent

Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sýrlensk stjórnvöld segja Ríki íslams bera ábyrgð á hryllingnum.
Sýrlensk stjórnvöld segja Ríki íslams bera ábyrgð á hryllingnum. EPA/Mohammed al-Rifai

Tuttugu og tveir eru látnir og sextíu og þrír særðir eftir sjálfsvígsárás í kirkju í Damaskus í dag. Íslamska ríkið ber ábyrgð á árásinni samkvæmt sýrlenskum stjórnvöldum.

Árásin er sú fyrsta sinnar tegundar sem framin hefur verið í Sýrlandi frá því að Bashar al-Assad fyrrverandi forseta var steypt af stóli í desember og ný stjórn íslamista tók við völdum. Samkvæmt umfjöllun Guardian gekk maður með tengsl við Ríki íslams inn í gríska rétttrúnaðarkirkju helgaða Sankti Elíasi í gamla kristna hverfi Damaskusborgar á meðan íbúar báðu. Hann hóf skothríð og sprengdi sig svo í loft upp með sjálfssprengivesti.

Sjónarvottar segja byssumennina hafa verið tvo og að hinn hafi skotið á viðstadda en ekki sprengt sig í loft upp í kjölfarið.

„Fólkið bað í öryggi sínu fyrir augliti guðs. Það voru 350 manns að biðja í kirkjunni,“ hefur Guardian eftir Fadi Ghattas sem kveðst hafa séð tuttugu hið minnsta láta lífið.

Ríki íslams safnar kröftum

Á myndefni sem fréttamenn Guardian hafa undir höndum sjást kirkjubekkirnir kastast á hvolf í þegar höggbylgja sprengingarinnar skall á þá og blóðug lík safnaðarbarnanna limlest af krafti hvellsins. Íbúar í nágrenninu segjast hafa orðið vara við háværan hvell og sírenuvæl í kjölfarið.

Árásin er sú fyrsta sem Ríki íslams hefur gert í Sýrlandi eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara undanfarna mánuði. Hryðjuverkasamtökin hafa reynt að nýta sér stjórnleysið í landinu í kjölfar falls og flótta Assad til að gera sig gildandi á nýjan leik. Samkvæmt upplýsingum heimildamanna Guardian í hinni nýviðteknu sýrlensku stjórnsýslu tókst þeim að sanka að sér vopnum og skotfærum þegar herlið Assad liðaðist nær fyrirvaralaust í sundur í desember síðastliðnum.

Sjá einnig: Hver er Abu Mohammed al-Jolani?

Hin nýju sýrlensku stjórnvöld, sem lúta stjórn fyrrum leiðtoga andspyrnuhópsins íslamska Hayat Tahrir al-Sham, hafa heitið því að standa vörð um öryggi og réttindi minnihlutahópa í landinu og hafa einnig gert ítrekaðar atlögur að vígum Ríkis íslams.

Kallað eftir aðgerðum

„Þessi huglausa gjörð stangast á við þau gildi borgarans sem sameina okkur öll. Við sem Sýrlendingar leggjum áherslu á mikilvægi þjóðareiningar og borgaralegs friðar og köllum eftir því að styrkt verði bræðralag allra hópa samfélagsins,“ er haft eftir Hamza al-Mustafa upplýsingamálaráðherra Sýrlands.

Geir Pedersen, sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í málum Sýrlands tekur í sama streng. Hann segir árásina viðurstyggilegan glæp og kallar eftir því að stjórnvöld rannsaki málið ítarlega og ráðist í aðgerðir.


Tengdar fréttir

Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi

Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð í Sýrlandi. Forseti landsins hefur útnefnt 23 ráðherra sem munu starfa þangað til að unnt verði að halda kosningar.

Óttast að næstu „ljónsungar“ kalífadæmisins valdi usla

Aðstæður í al Hol búðunum í Sýrlandi, þar sem sýrlenskir Kúrdar hafa um árabil haldið eiginkonum og börnum ISIS-liða, hafa versnað til muna að undanförnu. Árásir eru tíðar og ógnin frá Íslamska ríkinu hefur aukist, bæði utan búðanna og innan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×