Upp­gjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögu­legan sigur

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Mosfellingar unnu í kvöld sinn fyrsta útisigur í sumar og um leið þann fyrsta hjá félaginu í efstu deild.
Mosfellingar unnu í kvöld sinn fyrsta útisigur í sumar og um leið þann fyrsta hjá félaginu í efstu deild. Vísir/Diego

Afturelding vann sinn fyrsta útisigur frá upphafi í efstu deild þegar liðið sótti þrjú stig til Vestmannaeyja í kvöld. Afturelding vann leik nýliðanna 2-1 eftir að Eyjamenn komust 1-0 yfir í fyrri hálfleik hálfleik.

Tvö mörk á tveggja mínútna kafla í seinni hálfleik var það sem skar úr um úrslit leiksins. Mosfellingar koma sér með þessum sigri upp í jsötta sæti deildarinnar og eru þar með sautján stig. Eyjamenn sitja eftir í fallbaráttunni með fjórtán stig.

Leikurinn hófst á því að leikmenn reyndu að koma undir sig fótunum á blautum og þungum Þórsvellinum. Í takt við það var boltinn að miklu leyti til í loftinu en ekki á grasinu.

 Á tíundu mínútu settist Bjarni Páll Linnet Runólfsson niður og kveinkaði sér í fætinum. Fékk hann aðhlynningu og þurfti vegna þess að fara af velli. Heimamenn nýttu sér þann liðsmun í það augnablik sem það varði. Hermann Þór Ragnarsson komst þá skyndilega einn í gegnum vörn gestanna og setti boltann í stöngina. Spánverjinn Vicente Valor var þó fyrstur á vettvang og rúllaði honum í tómt netið.

Bjarna Páli var skipt af velli strax í kjölfar marksins og kom Aron Jóhannsson inn á í hans stað.

Á 21. mínútu komust Mosfellingar í sitt fyrsta færi og komu reyndar boltanum í netið. Elmar Cogic átti þá skot sem Marcel Zapytowski, markvörður ÍBV, varði aftur út í teiginn. Þar kom Benjamin Stokke aðvífandi og kom boltanum í markið í annarri tilraun. Markið var þó dæmt af þar sem Helgi Mikael, dómari leiksins, mat það sem svo að Marcel Zapytowski hafði náð fullu valdi á boltanum áður en Stokke tróð boltanum yfir línuna í annarri tilraun.

Eyjamenn voru nálægt því að tvöfalda forystu sína eftir um 35 mínútna leik. Vicente Valor slapp þá einn í gegn eftir skemmtilegt samspil við Sverrir Pál Hjaltested. Jökull Andrésson las þó Spánverjann eins og opna bók og varði boltann.

Heimamenn fóru því með nokkuð sanngjarna 1-0 forystu inn í hálfleikinn.

Gestirnir komu dýrvitlausir inn í síðari hálfleikinn og hófu hann af miklum krafti. Það skilaði sér á 54. mínútu þegar Aron Jóhannsson komst upp hægri kantinn og kom með háa sendingu inn á teig Eyjamanna. Þar reis Benjamin Stokke hæst allra og stangaði boltann í netið. Frábært skallamark.

Aðeins mínútu síðar var leikurinn kominn á hvolf. Aron Jóhannsson tók þá boltann á lofti rétt innan teigs eftir sendingu frá Sævari Atla Hugasyni og boltinn söng í netinu.

Í kjölfar markanna gerði Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, tvöfalda breytingu á sínu liði til að breyta gangi leiksins. Á næstu mínútum fengu Eyjamenn tvö álitleg færi en ekki komu þeir boltanum yfir línuna.

Mosfellingar náðu góðum tökum á leiknum í kjölfarið á meðan angistin jókst í leik ÍBV.

Munaði þó mjóu á lokarandartökum leiksins að Milan Tomic næði að pota boltanum fram hjá Jökli í markinu. Vantaði þó aðeins upp á sentimetrana þar og sigur Aftureldingar því í höfn.

Atvik leiksins

Tveggja mínútna kaflinn í síðari hálfleik þegar gestirnir breyttu gangi leiksins. Tvö glæsileg mörk hjá Aftureldingu sem á endunum tryggðu þrjú verðmæt stig.

Stjörnur og skúrkar

Aron Jóhannsson var potturinn og pannan á þeim kafla sem leikurinn breytist. Frábær fyrirgjöf í fyrra markinu og glæsileg skottækni í síðara markinu.

Benjamin Stokke var tveggja manna maki og rúmlega það í framlínu Aftureldingar. Vann alla skallabolta og skoraði geggjað skallamark.

Oliver Sigurjónsson og Vicente Valor voru báðir öflugir fyrir sín lið inn á miðjunni.

Felix Örn Friðriksson átti ekki sinn besta dag í vinstri bakverðinum hjá ÍBV. Bæði mörk gestanna komu upp hægri vænginn þar sem Felix Örn átti að standa vörð. Fyrirgjafir og sóknartilburðir Felix Arnars hafa einnig margoft verið betri en í þessum leik.

Dómarar

Helgi Mikael Jónasson var ekki mikið að veifa spjöldum í þessum leik þó aðstæður og leikmenn buðu upp á slíkt. Vegna þess fór leikurinn jafnvel ekki út í neina vitleysu. Mér sýnist Helgi Mikael og hans menn hafa gert rétt þegar þeir dæmdu mark af Benjamin Stokke í fyrri hálfleik. Marcel Zapytowski virðist hafa náð annarri hendinni á boltann og þar með valdi á honum áður en Stokke sparkaði honum yfir línuna.

Stemning og umgjörð

Ágæt stemning í Eyjum í kvöld. Menn létu vel í sér heyra úr brekkunni þegar þeim fannst eitthvað upp á vanta hjá leikmönnum eða dómurum leiksins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira