Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Bylgjulestin 27. júní 2025 12:36 Bylgjulestin mætir til Hafnarfjarðar á laugardag en þessi helgi er opnunarhelgi bæjar- og tónlistarhátíðarinnar Hjarta Hafnarfjarðar. Mynd/Ólafur Hannesson. Það verður mikil stemning í Hafnarfirði um helgina en þá hefst bæjar- og tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar. Bylgjulestin mætir að sjálfsögðu í fjörðinn fagra og plantar sér á útisvæðinu bak við Bæjarbíó á laugardag þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá.
Kristín Ruth og Ívar Guðmunds verða í beinni útsendingu á Bylgjunni milli kl. 12-16 á laugardag og taka á móti góðum gestum. „Við erum með góða gesti eins og venjulega,“ segir Ívar „Þar má m.a. nefna Begga í Pöpum, Prettyboitjokkó og Klöru Einarsdóttur sem er dóttir Einars Bárðarsonar og hefur getið sér gott orð sem söngkona. Við kíkjum svo á helgarlistann þar sem þemað er hjarta enda erum við í Hjarta Hafnarfjarðar og förum í lagaleikinn Nágranninn.“ Kristín Ruth og Ívar Guðmunds verða í beinni útsendingu á Bylgjunni milli kl. 12-16 á laugardaginn. Það má búast við góðum gestum og miklu fjöri. Boðið verður upp á andlitsmálningu, leiki og ýmsa skemmtun og gefinn verður varningur frá Bylgjunni fyrir alla hressa krakka Bæjar- og tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar stendur yfir í sex helgar og hefst formlega fimmtudaginn 26. júní. Dagskráin stendur yfir frá fimmtudegi til laugardags og má kynna sér dagskrána á vef Bæjarbíós. Það var mikið fjör á Hjarta Hafnarfjarðar á síðasta ári. Myndir/Ólafur Hannesson. Á laugardag verður boðið upp á Hamingjustund kl. 17-19 þar sem Guðrún Árný syngur með gestum. Klukkan 19.30 taka svo Paparnir við og halda uppi miklu stuði í Bylgjutjaldinu. „Við erum svakalega stolt af því að fylgja Hjarta Hafnarfjarðar níunda árið í röð. Þessi hátíð hefur þróast virkilega vel er orðin ein stærsta tónlistarveisla landsins,“ bætir Ívar við. Samstarfsaðilar Bylgjulestarinnar verða með í för. Sjóvá og Samgöngustofa munu fjalla um umferðaröryggi, Topptjöld og vagnar verða með iKamper vagn til sýnis, 7up Zero gefur gestum frískandi drykki, bílaumboðið Askja verður með bílasýningu og gjafapokarnir frá Bylgjunni verða að sjálfsögðu á sínum stað með 7up Zero pink, nammi frá Danól og varningi frá Bylgjunni. Næstu áfangastaðir Bylgjulestarinnar í sumar: 5. júlí Akranes 13. júlí Selfoss 19. júlí Hljómskálagarðurinn 26. júlí Vaglaskógur s
Bylgjan Bylgjulestin Hafnarfjörður Mest lesið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Simmi og Hugi taka sér pásu: „Það er hagsmunaárekstur“ Lífið Chappell Roan elskar Fischersund Tíska og hönnun Ingibjörg Sólrún steig trylltan dans Lífið Stjörnulífið: Á rassinum með ref Lífið „Þrjátíu og eitt ár síðan stuðboltinn Bakkus sagði mér upp“ Lífið Skotið á hús Rihönnu í Beverly Hills Lífið Þolir ekki þegar kærastinn talar um tilfinningar Lífið Hver er maðurinn? Lífið Þriggja daga leikhús fáránleikans Lífið Fleiri fréttir Unglingabólur eða úfið hár? Beautyklúbburinn er með lausnina Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira