Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. júlí 2025 07:33 Menn hefja viðgerðir á blokk eftir drónaárás Rússa. epa/Yuri Kochetkov Alþjóðabankinn áætlar að tíu ára enduruppbygging Úkraínu muni kosta um það bil 524 milljarða dala en færi svo að Rússum yrði að ósk sinni og þeir fengju þau svæði sem þeir hafa nú þegar lagt undir sig í friðarsamningum, myndu tæplega 200 milljarðar dala falla á þá.
Ítalska hugveitan Institute for International Political Studies hefur áætlað út frá rannsóknum Alþjóðabankans að endurreisn umræddra svæða; Donetsk, Luhansk, Zaporizhzhia og Kherson, muni krefjast 188 milljarða dala fjárfestingar. Samkvæmt þessari sviðsmynd myndu Úkraínumenn ekki aðeins standa frammi fyrir pólitískri sundrung, heldur mögulega verulegri fjárhagslegri misskiptingu, þar sem íbúar á svæðunum fjórum myndu búa við bágari aðstæður en aðrir landsmenn. Þess ber að geta í þessu samhengi að Úkraínumenn hafa ekki fallist á kröfur Rússa um að þeir gefi eftir hernumda landsvæðið. Evrópuleiðtogar eru nú staddir í Róm á ráðstefnu um endurreisn Úkraínu, sem er í mikilli óvissu eins og sakir standa. Vopnahlésviðræður hafa að stóru leyti strandað á kergju Rússa til að komast að málamiðlun og þá hafa síðarnefndu gefið í árásir sínar á borgir Úkraínu síðustu daga og vikur.
Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira