Madueke skrifar undir hjá Arsenal Valur Páll Eiríksson skrifar 18. júlí 2025 16:27 Noni Madueke skrifaði undir hjá Arsenal í dag. Mynd/Arsenal Arsenal hefur tilkynnt um kaup á enska kantmanninum Noni Madueke frá Chelsea fyrir 50 milljónir punda.
Skiptin hafa legið í loftinu um hríð en Madueke er fjórði leikmaðurinn sem Skytturnar festa kaup á í sumar. Hann skrifar undir langtímasamning og færir sig um set innan Lundúna. Madueke er frá Lundúnum en hann spilaði fyrir bæðði Crystal Palace og Tottenham sem unglingur. Þaðan fór hann til PSV Eindhoven í Hollandi og stimplaði sig inn í aðalliðsbolta. Madueke samdi við Chelsea snemmárs 2023 en hefur nú fært sig til Arsenal eftir tvö og hálft ár hjá þeim bláklæddu. Welcome to The Arsenal, Noni Madueke 💨— Arsenal (@Arsenal) July 18, 2025 Auk Madueke hafa miðjumennirnir Christian Nörgaard og Martín Zubimendi samið við Arsenal í sumar, líkt og markvörðurinn Kepa Arrizabalaga. Mikel Arteta, knattspyrnustjóri liðsins, hefur unnið að því að breikka hóp Arsenal eftir strembinn lokakafla tímabilsins í fyrra. Arsenal gott sem skráði sig út úr titilbaráttunni við Liverpool í apríl en átti þar kafla þar sem aðeins einn leikur af sex vannst í deild, en liðið vann á sama kafla sterka sigra á Real Madrid í Meistaradeildinni. Félagið er sagt í framherjaleit og er sterklega orðað við Viktor Gyökeres, framherja Sporting Lissabon, og þá er talið tímaspursmál hvenær varnarmaðurinn Christian Mosquera verður keyptur frá Valencia. Arsenal hafnaði í öðru sæti ensku úrvalsdieldarinnar í fyrra og komst í undanúrslit bæði enska deildabikarsins og Meistaradeildar Evrópu.
Enski boltinn Fótbolti Mest lesið KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Íslenski boltinn Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Íslenski boltinn „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira