Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. júlí 2025 22:03 Jakob Gunnar mun spila í bláu fram á sumar. Lyngby Táningurinn Jakob Gunnar Sigurðsson hefur verið lánaður frá KR til Lyngby í Danmörku. Hann var fyrri hluta tímabils á láni hjá Þrótti Reykjavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu og skoraði þar 7 mörk í alls 15 leikjum.
Jakob Gunnar kemur frá Húsavík en samdi við KR á síðasta ári eftir að hafa farið mikinn með Húsvíkingum í 2. deildinni. Völsungur fór á endanum upp úr 2. deildinni en Jakob Gunnar hélt í Vesturbæinn. Hann fékk þó aldrei tækifæri í Bestu deildinni en var lánaður innan borgarmarkanna til Þróttar sem leikur deild neðar. Þar skoraði hinn 18 ára framherja nokkur mörk en vann sér þó aldrei inn fast sæti í byrjunarliði Sigurvins Ólafssonar þjálfara. Jakob Gunnar mun ekki spila fleiri leiki fyrir Þrótt þar sem hann hefur nokkuð óvænt samið við Íslendingalið Lyngby sem leikur í B-deildinni í Danmörku. Hann mun þó, fyrst um sinn allavega, leika með U-19 ára liði félagsins. Þar hittir hann fyrir þjálfarann Michael John Kingdon en sá hefur starfað fyrir Knattspyrnusamband Íslands og Fylki. Þegar það virtist sem Íslendingatenging Lyngby væri að fjara út þá gerðist Vigfús Arnar Jósepsson, fyrrverandi þjálfari Leiknis Reykjavíkur og aðstoðarþjálfari KR, njósnari hjá félaginu. Skömmu síðar færði Michael John sig úr Árbænum til Kaupmannahafnar og svo kom Ísak Snær Þorvaldsson á láni frá Rosenborg á dögunum. Ísak Snær byrjar af krafti og skoraði í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Nú er bara að bíða og sjá hvort Jakob Gunnar fái tækifæri með aðalliði Lyngby í B-deildinni í Danmörku áður en hann fær tækifæri í Bestu deildinni með KR. Lánsamningurinn gildir út tímabilið í Danmörku eða fram á sumar 2026.
Fótbolti Íslenski boltinn Danski boltinn KR Besta deild karla Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira