KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 31. júlí 2025 17:32 Mættur í Vesturbæinn. Vísir/Diego Markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson er á leið til KR í Bestu deild karla í fótbolta. Þar með hafa KR-ingar leyst markmannsvandræði sín en Sigurpáll Sören Ingólfsson, varamarkvörður liðsins, ökklabrotnaði á dögunum.
Fyrir skemmstu kom í ljós að KR væri í leit að nýjum markverði til að Halldór Snær Georgsson hefði samkeppni á æfingu. Þá vantaði liðinu hreinlega markvörð svo útispilarar þyrftu ekki að setja á sig hanska á æfingu. Ástæðan var sú að Sigurpáll Sören meiddist illa og því voru góð ráð dýr. Nú hefur HK tilkynnt að félagið hafi samþykkt tilboð KR í hinn 32 ára gamla Arnar Freyr. Í tilkynningu HK segir: „Arnar Freyr er einn leikjahæsti leikmaður í sögu HK og spilaði fyrir félagið 265 leiki. Hann gekk til liðs við HK árið 2016 og varð fljótt að lykilleikmanni liðsins. Hann hefur allan sinn HK feril verið fyrirmynd fyrir unga leikmenn félagsins og verið dyggur þjónn fyrir félagið, bæði innan og utan vallar.“ Arnar Freyr varð fyrir því óláni að slíta hásin á síðasta ári. Hann hefur náð sér af þeim meiðslum og spilað átta leiki í deild- og bikar fyrir HK á tímabilinu. Hann hefur hins vegar undanfarið setið á bekknum þar sem Ólafur Örn Ásgeirsson hefur hirt stöðu aðalmarkvarðar hjá félaginu. HK er í 5. sæti Lengjudeildar með 27 stig, jafn mörg og Þór Akureyri sem er sæti ofar. Þróttur Reykjavík er með 28 stig í 3. sæti, Njarðvík 31 stig þar fyrir ofan og ÍR situr á toppnum með 32 stig. Efsta lið Lengjudeildar fer beint upp í Bestu deildina á meðan liðin í 2. til 5. sæti fara í umspil. KR er í 11. sæti Bestu deildar, stigi frá öruggu sæti.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild karla KR HK Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira