„Eitt af þessum kvöldum þar sem allt gekk upp“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. ágúst 2025 21:06 Gylfi er stoðsendingahæsti leikmaður keppninnarm með sex stoðsendingar í fimm leikjum í undankeppni Sambandsdeildarinnar. vísir / diego „Þetta var eitt af þessum kvöldum þar sem allt gekk upp“ sagði stoðsendingagjafinn Gylfi Þór Sigurðsson eftir frækinn 3-0 sigur Víkings gegn Bröndby í undankeppni Sambandsdeildarinnar.
Gylfi lagði fyrstu tvö mörk Víkings upp með frábærum fyrirgjöfum úr hornspyrnum, fyrst á Nikolaj Hansen og svo á Oliver Ekroth. „Bæði spyrnurnar og verkefni leikmanna inn í teig, góðar hreyfingar og menn mættu á rétta staði. Ég er ekkert að kvarta yfir því, að ná að skora fyrstu tvö mörkin úr hornspyrnum.“ Víkingur setti síðan þriðja markið seint í leiknum, aftur eftir undirbúning Gylfa en stoðsendingin skráist ekki á hann. Engu að síður stór sigur sem skilaði sér. „Við vissum að við gætum náð í góð úrslit og auðvitað vonaði maður að vinna 3-0 en fyrir leik hefði maður kannski giskað á 1-0 eða 2-0 sigur. Ég var mjög ánægður með liðið, við spiluðum vel varnarlega, kannski aðeins undir lokin sem þeir voru hættulegir og við orðnir þreyttir en heilt yfir vel spilað hjá okkur.“ Bröndby sýndi klárlega ekki sínar bestu hliðar í kvöld, annað en Víkingur, en einvíginu er ekki lokið. „Þú getur spurt aftur eftir seinni leikinn [hvort Víkingur sé betra liðið] en þeir eru mjög góðir… Við verðum að vera þolinmóður og þéttir úti, vera tilbúnir til að vinna mikla vinnu varnarlega.“ Gylfi var fenginn til Víkings fyrir tímabilið, miklar væntingar voru gerðar til hans og hann stóð undir nafni í kvöld. „Þetta eru leikirnir sem maður vill spila í, auðvitað skemmtilegra þegar við förum út og verður vonandi fullur völlur. Þetta er kannski ekki það sama og maður var vanur í gamla daga en auðvitað frábær stemning hérna, sérstaklega á svona Evrópukvöldum.“
Víkingur Reykjavík Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira