Gera loftárásir á háhýsi og vara við yfirvofandi innrás Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. september 2025 06:44 Síðustu daga hefur herinn gert loftárásir á fjölda háhýsa og fjölbýlishúsa í Gasa-borg. Getty/Anadolu/Ali Jadallah Ísraelsher hefur fyrirskipað íbúum Gasa-borgar að yfirgefa borgina, vegna aukins þunga í loftárásum. Þá hefur forsætisráðherrann Benjamin Netanyahu ráðlagt fólki að hafa sig á brott, þar sem innrás sé yfirvofandi.
Heilbrigðisyfirvöld á Gasa segja 65 hafa verið drepna í árásum Ísraelsmanna á síðasta sólahring og um 320 hafa særst. Netanyahu sagði í ávarpi að á síðustu dögum hefði herinn fellt 50 „hryðjuverkaturna“ en þar væri aðeins um að ræða upphafsstefið að aðalatriðinu; innrás hersins inn í borgina. Þá ávarpaði hann íbúa borgarinnar beint: „Þið hafið verið varaðir við; farið núna“. Íbúar leita að eigum sínum í rústum byggingar.Getty/Anadolu/Ali Jadallah Varnarmálaráðherrann Israel Katz greindi frá því í morgun að herinn hefði eyðilagt 30 háhýsi í Gasa-borg, sem stjórnvöld segja hafa verið hernaðarinnviði Hamas. Þá sagði hershöfðinginn Avichay Adraee, talsmaður Ísraelshers á arabísku, á samfélagsmiðlum í morgun að íbúar ættu að forða sér. Það væri afar áhættusamt og hættulegt að verða eftir í borginni.“ Tugir þúsunda hafa þegar yfirgefið borgina og haldið suður. Þá hafa Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðasamtök varað við því að aðgerðir Ísraelsmanna muni enn bæta á þjáningar íbúa Gasa, sem búa nú þegar við skort og hungursneyð. Alls hafa 62 þúsund manns verið drepnir í árásum Ísraels á Gasa, í kjölfar árása Hamas á byggðir Ísraelsmanna þann 7. október 2023.
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Hernaður Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Sjá meira