Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. september 2025 19:31 Arne Slot segir Hugo Ekitike frábæra manneskju sem megi gera mistök. Carl Recine/Getty Images Hugo Ekitike fékk frekar furðulegt rautt spjald í vikunni, fyrir að rífa sig úr að ofan eftir að hafa skorað sigurmark gegn Southampton, en slapp með tiltal og enga sekt frá þjálfara Liverpool.
Ekitike hafði fyrr í leiknum fengið gult spjald fyrir að kasta boltanum frá sér eftir flaut dómara, hann skoraði svo sigurmarkið eftir frábæran undirbúning Federico Chiesa og missti sig aðeins í fagnaðarlátunum, eins og sjá má hér fyrir neðan. Hefð hefur myndast fyrir því í fótboltaheiminum að félög sekti leikmenn sem brjóta reglur, hvort sem það eru reglur um stundvísi, spjöld, eða eitthvað allt annað eins og að geta ekki haldið klofinu lokuðu í reitarbolta. Slúðurblöðin í Bretlandi fóru á fullt í gær og greindu frá að Ekitike hefði verið sektaður um tveggja vikna laun fyrir rauða spjaldið gegn Southampton, en Arne Slot sagði svo ekki vera. „Ég agaði hann til með því að tala við hann, en ef þú átt við hvort hann hafi verið sektaður þá nei, við gerum ekki svoleiðis“ sagði Slot á blaðamannafundi í dag. Hann sagði Ekitike einnig átta sig á eigin mistökum og Liverpool sé ekki félag sem refsar með sektum. Ekitike sé líka, fyrst og fremst, frábær manneskja, ein af þremur bestu manneskjunum í liðinu. „Þetta var ekki sniðugt, það sem hann gerði, hann áttaði sig strax á því og bað liðsfélaga sína afsökunar. Leikmenn af öllum aldri gera mistök og það má gera mistök hjá þessu félagi án þess að vera strax sektaður. Hann er frábær manneskja, þú getur spurt hvern sem er hjá klúbbnum og þau myndu setja hann á topp þrjá listann.“
Enski boltinn Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Sjá meira