Viðskipti innlent

Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Play bauð upp á ferðir til Marrakesh í Marokkó sem fjölmargir Íslendingar nýttu sér undanfarið ár. Hér er fyrsta fluginu fagnað í Afríku. Ekkert beint flug er lengur í boði til Marrakesh frá Íslandi.
Play bauð upp á ferðir til Marrakesh í Marokkó sem fjölmargir Íslendingar nýttu sér undanfarið ár. Hér er fyrsta fluginu fagnað í Afríku. Ekkert beint flug er lengur í boði til Marrakesh frá Íslandi. Play

Miðað við nýlega flugáætlun Play fyrir næsta árið hefði félagið verið með tæplega sex prósent af öllum flugsætum til og frá Keflavíkurflugvelli næsta árið hefði félagið ekki farið í þrot. Þrátt fyrir helmingi minna umfang hefði flugfélagið áfram verið næststærsti viðskiptavinur Isavia á eftir Icelandair. 

Play tilkynnti í gær að félagið hefði hætt starfsemi og væri á leið í gjaldþrotameðferð. Beiðni um gjaldþrot var lögð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá Isavia átti Play um tólf prósent af framboði til og frá Keflavíkurflugvelli í september.

Í skriflegu svari frá Isavia kemur fram að ef horft er á tímabilið frá október 2025 til og með ágúst 2026 þá var Play með 5,8% af öllum flugsætum í sölu miðað við þá áætlun sem félagið gaf út fyrir nokkrum mánuðum.

„Það hlutfall hefði vissulega getað lækkað ef önnur félög hefðu aukið við framboð sitt t.d. á sumaráætlun 2026 en þær áætlanir eru tilbúnar í desember næstkomandi. Play hefði því, þrátt fyrir breytta viðskiptalíkan verið næststærsti viðskiptavinur okkar en ekki langt frá félögum á borð við easyJet og Wizz,“ segir Guðjón.

Play var með 21 áfangastað í áætlun sinni og þar af níu áfangastaði sem ekkert annað flugfélag flýgur til frá Íslandi í október. Áfangastaðirnir eru Antalya í Tyrklandi, Faro, Funchal og Porto í Portúgal, Liverpool á Englandi, Madrid á Spáni, Marrakech í Marokkó, Split í Króatíu og Vilníus í Litháen.

Guðjón segir Isavia eiga í góðu samtali við flugfélög sem fljúga um KEF um hvort þau stígi inn þar sem Play var að fljúga. Viðbætur í þá átt yrðu þó væntanlega ekki fyrr en næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×