Sjáðu lygilegar lokamínútur á Meistaravöllum Valur Páll Eiríksson skrifar 4. október 2025 16:58 Fall vofir yfir KR sem er á botninum. Vísir/Anton Brink Það gekk á ýmsu undir lok botnslags KR og Aftureldingar í Bestu deild karla síðdegis. Þrjú mörk voru skoruð á 90. mínútu eða síðar og rautt spjald fór á loft. Leiknum lauk 2-2 og fóru bæði lið ósátt frá borði.
Bæði þurftu sigur til að komast upp fyrir Vestra sem var í neðsta örugga sætinu. KR-ingar stýrðu leiknum fyrir hlé leiddu 1-0 í hálfleik þökk sé marki Eiðs Gauta Sæbjörnssonar. Eftir hlé misstu KR-ingar tökin og allt annað var að sjá til gestanna sem voru sterkari aðilinn. 1-0 stóð þó allt fram á 90. mínútu þegar Gyrðir Hrafn Guðbrandsson gerðist brotlegur innan teigs. Fyrirliðinn Aron Elí Sævarsson jafnaði af punktinum á ögurstundu. Klippa: Ótrúleg dramatík í Vesturbæ KR svaraði hins vegar. Finnur Tómas Pálmason virtist brotlegur en vann boltann á Aron Sigurðarson sem gaf fyrir og fann höfuð Michaels Akoto sem skallaði boltann í netið á 93. mínútu og allt ætlaði um koll að keyra í Vesturbæ. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, fékk í kjölfarið rautt spjald vegna ósættis sökum meints brots í aðdraganda marksins. KR-ingar hafa hins vegar ekki verið þekktir fyrir góðan varnarleik í sumar og héldu ekki einbeitingu. Elmar Kári Cogic tókst að jafna fyrir gestina öðru sinni. Ótrúleg dramatík í Vesturbæ, úrslitin 2-2 eftir þrjú mörk á lokakaflanum. Liðin í afar slæmum málum. KR er á botninum með 25 stig, Afturelding með 26 fyrir ofan og Vestri með 27. Vestri mætir KA á morgun og vinni Ísfirðingar þar fara þeir langt með að fella hin tvö. Sjón er sögu ríkari en ótrúlegan lokakafla leiksins má sjá í spilaranum að ofan í lýsingu Gunnars Ormslev.
Besta deild karla KR Afturelding Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira