Utan vallar: Var Helgi Guðjóns að eiga Steina Gísla sumar? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2025 09:01 Helgi Guðjónsson fagnar einu marka sinna fyrir Víkinga í sumar en Sigursteinn Gíslason sést síðan með Íslandsbikarinn haustið 1994 eftir að hafa átt frábært sumar. Vísir/Pawel Cieslikiewicz/timarit.is/Dagblaðið Vísir Víkingar eru Íslandsmeistarar í fótbolta í þriðja sinn á síðustu fimm árum. Liðið er búið að tryggja sér titilinn í Bestu deildinni fyrir síðustu tvær umferðirnar. Ein af hetjunum í Hamingjunni í sumar var leikmaður sem var færður mun aftar á völlinn en við erum vön að sjá hann.
Það koma margir til greina sem bestu leikmenn Bestu deildar karla í fótbolta í sumar. Að mínu mati á Helgi Guðjónsson alltaf að vera einn af þeim. Við sáum samt allt aðra útgáfu af Helga í sumar en við erum vön. Síðustu ár hefur hann átt stóran þátt í góðum árangri Víkingsliðsins en þó vanalega með því að koma sterkur inn af bekknum og gera oft útslagið á lokakafla leikja. Hann hefur hingað til verið framherji og stundum verið úti á vængnum. Samkeppnin í þessar stöður er mikil í Víkingsliðinu og Helgi þurfti oft að byrja á bekknum. Hann var samt alltaf í miklum metum hjá þjálfurum og stuðningsmönnum enda maður sem kom oftast með jákvæða innkomu í leikjum og bauð upp á þann hæfileika að geta breytt leikjum. Sölvi Geir Ottesen tók við þjálfun Víkingsliðsins af Arnari Gunnlaugssyni fyrir þetta tímabil og hann sá annan leikmann í Helga. Stöðu sem flestir settu upp stórt spurningamerki þegar þeir sáu framherjann vera kominn alla leið niður í vængbakvörðinn. Fékk fast sæti í liðinu Helgi greip því hins vegar fagnandi að fá loksins fast sæti í liðinu og hefur blómstrað í vinstri vængbarkverðinum. Hann hefur átt fjölda stoðsendinga og er ekkert hættur að skora þótt hann sé kominn aftar á völlinn. Það sýndi hann sem dæmi í sigurleiknum á FH sem tryggði Íslandsmeistaratitilinn með því að skora seinna markið og gulltryggja sigurinn og um leið titilinn. Þetta var líka þriðja markið hans í þremur leikjum liðsins í úrslitakeppninni. Helgi er þriðji markahæsti leikmaður Víkingsliðsins í sumar með átta mörk og stoðsendingahæstur í öllu liðinu með níu stoðsendingar. Helgi hefur alls komið að sautján mörkum eða flestum allra í Íslandsmeistaraliði Víkings. Sumarið 1994 hjá Steina Gísla Þessi innkoma Helga í nýja stöðu minnir mig svolítið á það þegar Sigursteinn Gíslason var færður af miðjunni hjá Skagaliðinu og niður í vinstri bakvörðinn með frábærum árangri. Sigursteinn viðurkenndi á sínum tíma að hafa ekki verið sáttur við þessa breytingu í byrjun en fann fljótlega að þessi staða hentaði honum afar vel. Sigursteinn kom inn í þessa stöðu eftir skell Skagamanna í byrjun sumars 1993 og hvorki hann né Skagaliðið litu til baka eftir það. ÍA vann tvöfalt um haustið og náði einnig að vinna eftirminnilegan sigur á Feyenoord í Evrópukeppninni. Árið eftir átti Sigursteinn síðan stórkostlegt tímabil í vinstri bakverðinum þegar Skagamenn unnu aftur Íslandsmeistaratitilinn. Það var ekki alveg sama markaveislan hjá Skagamönnum og árið áður en frammistaða Sigursteins bar af að mati flestra spekinga og blaðamanna. Eftir tímabilið var hann síðan kosinn leikmaður ársins í stöðu sem hann hafði aldrei hugsað sér að spila. Nýjar víddir á vellinum Leikmenn með rétta keppnisskapið, sigurviljann og fótboltagáfur eiga alltaf möguleika á að finna nýjar víddir á vellinum í nýjum stöðum. Helgi er enn eitt góða dæmið um það. Margir leikmenn Víkings hafa vissulega átt gott tímabil í ár. Daniel Hafsteinsson hefur verið flottur inni á miðjunni á sínu fyrsta tímabili í Víkinni. Valdimar Þór Ingimarsson kom inn úr kuldanum og hefur farið á kostum seinni hluta sumars og þá má ekki gleyma mikilvægi Gunnars Vatnhamar, en liðið tapar ekki þegar Færeyingurinn byrjar leikina. Tímabilsins verður samt kannski aðallega minnst fyrir að vera sumarið sem Helgi Guðjónsson blómstraði óvænt í glæmýrri stöðu. Hvort sem hann verður kosinn leikmaður ársins eða ekki þá hefur þetta verið hans sumar.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Allir verði að sjá æfingar Thelmu Sport „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Íslenski boltinn Keflvíkingur keppti í Squid Game Íslenski boltinn Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Íslenski boltinn Hætta með maraþonhlaup á HM í frjálsum Sport Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Íslenski boltinn Hljóp heilt maraþonhlaup á göngum skólans síns Sport Vinícius Júnior segir mikilvægt að Yamal láti í sér heyra Fótbolti Sleit hásin í upphitun og missir af HM í fótbolta Fótbolti Sagði dómarann láta eins og hann væri á túr Fótbolti Fleiri fréttir „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Sjá meira