Segir herinn tilbúinn að verjast innrás Samúel Karl Ólason skrifar 17. október 2025 10:48 Nicolas Maduro, forseti Venesúela. AP/Ariana Cubillos Nicolás Maduro, forseti Venesúela, segist vera að senda hermenn að ströndum Karíbahafsins og kalla út milljónir manna í varalið, vegna ógnunar frá hernaðaruppbyggingu Bandaríkjamanna á svæðinu. Hann er sagður hafa boðið Bandaríkjamönnum að hann myndi stíga til hliðar á næstu árum en því boði mun hafa verið hafnað.
Bandaríkjamenn hafa safnað saman töluverðum herafla við Karíbahafið og á því. Frá því í september hafa Bandaríkjamenn gert nokkrar árásir á báta sem ráðamenn vestanhafs hafa haldið fram að hafi verið notaðir til að smygla fíkniefnum. Þeir hafa þó engar sannanir fært fyrir því og óhætt er að segja að miklar efasemdir eru uppi um að árásirnar séu löglegar. Talið er mögulegt að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gæti tekið þá ákvörðun að reyna að koma Maduro frá völdum með afli en í einrúmi segja bandarískir embættismenn að það sé markmiðið. Trump hefur viðurkennt að hann hafi heimilað leyniþjónustum Bandaríkjanna að hefja einhverskonar aðgerðir í Venesúela. Sjá einnig: Heimilar banatilræði í Venesúela og íhugar árás AP fréttaveitan hefur eftir heimildum að Maduro hafi lagt til að hann myndi stíga til hliðar sem forseti eftir þrjú ár og að Delcy Rodriguez, varaforseti hans, myndi klára sex ára kjörtímabilið, sem lýkur árið 2031. Rodriguez myndi svo ekki gefa aftur kost a sér til embættis forseta. Maduro sór embættiseið í janúar, þó trúverðugar vísbendingar bendi til þess að hann hafi tapað forsetakosningunum í fyrra. Sjá einnig: Blinken segir González réttkjörinn forseta en Maduro situr sem fastast Hvíta húsið hafnaði þessari tillögu á þeim grunni að ríkisstjórn Maduros væri ólögmæt og að hann stýrði ríki sem byggði á fíkniefnaframleiðslu og hryðjuverkastarfsemi. Maduro tjáði sig um þessar fregnir á viðburði í Venesúela í gær þar sem hann sagði þær ekki sannar. Þeim væri eingöngu ætlað að sundra venesúelsku þjóðinni. Rodriguez gerði það einnig á samfélagsmiðlum. Hún sagði fregnirnar falskar. Ekki nóg til innrásar Wall Street Journal segir ríkisstjórn Maduro hafa aukið útbreiðslu áróðurs í garð Bandaríkjanna, í sjónvarpi, útvarpi og á samfélagsmiðlum. Þar sé íbúum sagt að Bandaríkjamenn séu nasistar sem vilji koma klónum í olíuauð þjóðarinnar. Því hefur einnig verið haldið fram að her Venesúela sé tilbúinn til að verjast yfirvofandi innrás Bandaríkjamanna. Áætlað er að hermenn séu um 125 þúsund talsins, á blaði. Myndefni sem birt hefur verið sýnir einnig almenning taka þátt í þjálfun fyrir mögulegan hernað og herþotur framleiddar í Rússlandi á flugi. Sérfræðingar sem ræddu við WSJ segja hernaðaruppbyggingu Bandaríkjamanna á svæðinu ekki gefa til kynna að innrás sé í vændum. Hins vegar dugi hún til loftárása í Venesúela. Vitað er að minnst átta herskipum hafi verið siglt á svæðið auk eins kafbátar. Þá er búið að senda F-35 herþotur, eftirlitsvélar og dróna á svæðið einnig. Einnig hafa fregnir borist af því að sérsveitir hafi verið sendar til Karíbahafsins. Aðmíráll stígur til hliðar Alvin Holsey, aðmírállinn sem stýrt hefur yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Suður-Ameríku (SOUTHCOM), mun hætta starfi sínu í loki þessa árs. Þetta tilkynnti Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, í gær en einungis ár er síðan Holsey tók við starfinu og sitja menn yfirleitt í því í þrjú ár. Hegseth sagði ekki af hverju aðmírállinn væri að stíga til hliðar en samkvæmt heimildum New York Times hafði Holsey lýst yfir ótilgreindum áhyggjum sínum af árásum Bandaríkjamanna á áðurnefnda báta á Karíbahafi og öðrum verkefnum á svæðinu. Frá því Hegseth tók við embætti hafa margir háttsettir yfirmenn í herafla Bandaríkjanna verið reknir eða þeim bolað úr starfi. Margir þeirra hafa verið þeldökkir, eins og Holsey, eða konur.
Venesúela Bandaríkin Donald Trump Hernaður Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Sjá meira