Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Lovísa Arnardóttir skrifar 11. nóvember 2025 12:07 Allison Mack losnaði úr fangelsi fyrir tveimur árum og ræðir nú í fyrsta sinn aðkomu sína að söfnuðinum, dóminn og fangelsisvistina. Vísir/EPA Allison Mack, sem dæmd var í þriggja ára fangelsi fyrir aðkomu hennar að kynlífs-sértrúarsöfnuðinum Nxivm, (borið fram Nexium) hefur nú tjáð sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að söfnuðinum, hvernig hún plataði aðrar konur til að taka þátt og dóm sinn. Í nýrri sjö þátta hlaðvarpsseríu segist Mack ekki álíta sjálfa sig saklausa. Hún hafi treyst Keith Raniere, leiðtoga söfnuðarins, fullkomlega. Hún var hluti af söfnuðinum í tólf ár.
Mack var áður leikkona og var þekkt fyrir leik sinn sem Chloe Sullivan í þáttunum Smallville sem voru í sýningu frá 2001 til 2011. Hlaðvarpsserían Allison after Nxivm var frumsýnd í gær. Þættirnir eru framleiddir af CBC og þeim stýrt af Natalie Robehmed. Fjallað er um þættina hér, hér og hér. Mack var dæmd árið 2021 til þriggja ára dóms fyrir aðkomu sína að sértrúarsöfnuðinum en losnaði úr fangelsi fyrir tveimur árum. Hún hlaut dóm fyrir fjárkúgun en játaði að hafa hjálpað leiðtoga hópsins að finna konur sem hann misnotaði kynferðislega. Dómur hennar var mildaður því hún aðstoðaði við að sakfella aðra fyrir aðkomu þeirra að söfnuðinum. Fyrst var fjallað um málið í New York Times árið 2017. Stuttu síðar var forsprakki NXIVM, Keith Raniere, handtekinn í Mexíkó. Hann var sakfelldur árið 2019 og afplánar nú 120 ára fangelsisdóm fyrir mansal, fjársvik og ýmislegt annað. Fjallað var um söfnuðinn í heimildarþáttunum The Vow árið 2020 sem voru framleiddir af HBO. Í hlaðvarpsþáttunum um Mack segir hún að Raniere hafi sannfært sig um að kynferðislegt samband við hana væri nauðsynlegt til að „lækna hana“. Hún hafi leitað til hans þegar hann var starfandi í New York til að fá aðstoð með kynhneigð sína og kynlíf eftir ábendingu frá leikkonunni Kristin Kreuk, sem einnig lék í Smallville. „Ég sagði honum að það hefðu ákveðnir hlutir gerst þegar ég var barn sem voru ekki í lagi – og að ég gæti ekki tekist á við kynhneigð mína,“ segir Mack í hlaðvarpinu og að hún hafi skammast sín fyrir líkama sinn og kynhneigð sína. Hún segist ekki hafa vitað hvernig hún ætti að takast á við það og að hann hafi sagt henni að hann gæti hjálpað henni. Hann hafi sagt henni að til þess að lækna hana yrði hann að sofa hjá henni. Hún segir í hlaðvarpinu að henni hafi þótt það skrítið en á sama tíma hafi henni þótt vænt um að geta trúað því loks að hún myndi fá raunverulega aðstoð. Talið er að Raniere hafi haft um fimmtán til tuttugu konur sem stunduðu kynlíf með honum eftir hans hentisemi, og var þeim meinað að ræða samband sitt við leiðtogann við aðra. Þá var þeim skylt að taka nektarmyndir af sér sem gat verið lekið ef þær fóru gegn vilja Raniere. Þá voru þær brennimerktar upphafsstöfum hans. Í réttarhöldunum kom einnig fram að Mack hafði sjálf „þræla“ sem hún stjórnaði og sagði til um hvenær þær mættu borða og hvað þær mættu borða. Hún hvatti konur til að leita til Raniere til að fá sömu aðstoð og hún fékk. Það endaði yfirleitt með því að Raniere nauðgaði þeim. Áður en dómur féll bað hún konurnar afsökunar í bréfi. Óvænt vinátta við fyrrverandi nýnasista Þættirnir eru í heildina sjö og fjalla um það hver hún er, hvernig Raniere sannfærði hana um að vera með í söfnuðinum, hvernig hún breyttist á þeim tólf árum sem hún tilheyrði söfnuðinum og um það þegar hún var handtekin og svo fangelsuð í kjölfarið. Í þeim er einnig rætt við Lauren Salzman, dóttir annars stofnanda söfnuðarins, sem tilheyrði honum í tuttugu ár. Að lokum er farið yfir það hvernig óvænt vinátta við nýnasista sem hafði snúið við bakinu við nasisma hjálpaði Mack. „Þegar Allison íhugar hlutverk sitt í NXIVM og skaðann sem hún olli, stendur hún frammi fyrir spurningunni um hvort hún geti treyst sjálfri sér aftur. Natalie fylgir Allison á húðflúrstofu í austurhluta Los Angeles, þar sem Allison lætur hylja brennimerkið sitt og breytir þannig eignarmerki í tákn endurnýjunar,“ segir í lýsingu fyrir síðasta þátt seríunnar.
Erlend sakamál Allison Mack og sértrúarsöfnuðurinn NXIVM Kynferðisofbeldi Bandaríkin Kynbundið ofbeldi Tengdar fréttir Meðstofnandi Nxivm á leið í fangelsi Nancy Salzman, annar stofnandi kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum, hefur verið dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi. 8. september 2021 21:12 Sagði sértrúarsöfnuðinn aðeins hafa snúist um kynlífs- og valdafíkn leiðtogans Saksóknari í máli Keith Raniere, leiðtoga kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum, sagði við lok réttarhaldana yfir honum að undirhópur safnaðarins, ætlaður valdeflingu kvenna, hafi í raun aðeins hafa þjónað þeim tilgangi að uppfylla þörf Raniere fyrir kynlíf og völd. 17. júní 2019 22:48 Allison Mack úr Smallville játar aðild að kynlífsþrælkun Leikkonan Allison Mack, sem er hvað þekktust fyrir að leika í þáttunum Smallville, játaði fyrir dómi í New York í dag að hafa komið að kynlífsþrælkunarhring. 8. apríl 2019 22:18 Mest lesið Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Erlent Hneykslan meðal kennara vegna rangfærslna Ingu í Kastljósi Innlent Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Erlent Kannast ekki við lýsingar leigubílstjóra Innlent Stóri-Boli boðar breytingar og klassískt vetrarveður Innlent Verði að bregðast við vinsældum meintra iðnaðarmanna á Facebook Innlent Trump segir Nielsen í vondum málum Erlent Trump sýndi verkamanni puttann Erlent Baráttan um Samfylkinguna í borginni nálgast suðumark Innlent Spyr hvort það hafi borgað sig að koma Flokki fólksins til valda Innlent Fleiri fréttir Verðandi sendiherra grínaðist með að Ísland yrði 52. ríkið Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni 32 látnir eftir að krani féll á lest í Taílandi Rannsaka ásakanir á hendur Iglesias Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Vaktin: Mikilvæg fundarhöld í Washington Tveir látnir eftir árekstur strætisvagna Reyna að tala Trump til og óttast afleiðingar árása Bandaríkjastjórn kemur barnaníðsefni Musk til varnar Mengunarreglur taka ekki lengur tillit til dauðsfalla og heilsu Starmer boðið sæti í „friðarstjórn“ Trump Trump segir Nielsen í vondum málum Trump heitir íhlutun ef stjórnvöld hefja aftökur Trump sýndi verkamanni puttann Keyptu tæki sem gæti útskýrt Havana-heilkennið Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur „Við veljum Danmörku“ Að minnsta kosti þrjú þúsund látnir í Íran Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Fá Andrés Önd til að bjarga læsi barna Borgin ber enga ábyrgð í Gufunesbruna og stjórnarmaður í Truenorth segir tjónið óbætanlegt Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Kynnir sér möguleika varðandi Íran og leggur toll á vinaríki klerkastjórnarinnar Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Þvert nei Grænlendinga við yfirtöku Bandaríkjanna Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Sjá meira
Meðstofnandi Nxivm á leið í fangelsi Nancy Salzman, annar stofnandi kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum, hefur verið dæmd í þriggja og hálfs árs fangelsi. 8. september 2021 21:12
Sagði sértrúarsöfnuðinn aðeins hafa snúist um kynlífs- og valdafíkn leiðtogans Saksóknari í máli Keith Raniere, leiðtoga kynlífs-sértrúarsafnaðarins Nxivm í Bandaríkjunum, sagði við lok réttarhaldana yfir honum að undirhópur safnaðarins, ætlaður valdeflingu kvenna, hafi í raun aðeins hafa þjónað þeim tilgangi að uppfylla þörf Raniere fyrir kynlíf og völd. 17. júní 2019 22:48
Allison Mack úr Smallville játar aðild að kynlífsþrælkun Leikkonan Allison Mack, sem er hvað þekktust fyrir að leika í þáttunum Smallville, játaði fyrir dómi í New York í dag að hafa komið að kynlífsþrælkunarhring. 8. apríl 2019 22:18